sjúkratryggingar.
Forseti. Kerfistregða eða kerfiskergja — það er stundum ásetningur þar á bak við finnst manni, getur verið, maður er minntur á það alla vega.
Hitt sem mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um er eftirlit með ákvörðunum um meðferðarúrræði og t.d. útskriftir á sjúklingum o.s.frv. Sögurnar eru mjög áhugaverðar um vald ákveðinna aðila innan heilbrigðiskerfisins til þess í rauninni að velja hvert sjúklingar fara án þess að það sé raunverulega hægt að veita þeim eftirlit. Það getur jafnvel leitt til aukins kostnaðar af því að það er ítrekað verið að senda þessa sjúklinga í dýrari eftirfylgniúrræði bara upp á einhverjar ákveðnar varúðarráðstafanir sem eru ekkert endilega til staðar. Það er dálítið alvarlegt ef það er þetta frjálsræði í rauninni um opinbert fjármagn án þess að það sé hægt að koma að því (Forseti hringir.) og spyrja hvort þetta sé nauðsynlegt þegar um dýr úrræði er að ræða.