155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

sjúkratryggingar.

260. mál
[16:07]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni þessa mjög góðu spurningu. Hún er snýr að einum af sjö þáttum sem við erum með í heilbrigðisstefnu sem Alþingi hefur samþykkt til 2030 sem heitir — af því að við erum með stigun í kerfinu, fyrsta, annað og þriðja stig, og við leggjum áherslu á það að fólk sé í réttri meðferð, í réttri þjónustu á réttum stað og þá með rétta meðferð, og að kerfið sé byggt þannig upp að það tryggi að þér sé vísað áfram frá fyrsta viðkomustað sem er heilsugæslan. Ég er einmitt með hóp sem var akkúrat að skoða þetta með tilliti til eftirlits og hvernig við getum byggt eftirlitið inn í þetta ferli, af því að það getur verið býsna erfitt í eftirlitstilgangi ef við tökum bara hefðbundnar stofnanir eins og SÍ og Skattinn, landlækni og fleiri stofnanir sem hafa eftirlit. Við byggjum þetta inn í kerfin okkar og þá gerir þú skoðanir, tilfallandi skoðanir, en við þurfum líka að hafa þetta inni í kerfunum okkar þannig að bara daglega sé fagvitundin (Forseti hringir.) og faglega meðferðin að tryggja að þú sért raunverulega á réttum stað á réttum tíma. Ég er með sérstakan hóp (Forseti hringir.) sem er að taka þetta atriði og skoða sérstaklega stigunina og hvernig hún getur tryggt okkur betra eftirlit, faglegt, inni í kerfinu.