sjúkratryggingar.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir hans framsögu. Ég vil aðallega beina til hans einni spurningu: Er ekki kjörið tækifæri, við afgreiðslu þessa frumvarps, sem ég held að sé mikilvægt að afgreiða, að við tryggjum í raun réttindi okkar Íslendinga, okkar sem þurfum á heilbrigðisþjónustu að halda, til að sækja hana hér til innlendra aðila, óháð því hvort það er opinber aðili eða einkaaðili? Ef þjónustan er í boði hjá einkaaðila þá geti menn sótt þjónustuna þangað kjósi þeir svo. Ég er sem sagt að tala fyrir því að í þessu frumvarpi verði með skýrum hætti tekin stefnumarkandi ákvörðun um að fé skuli fylgja sjúklingi; að það sé auðvitað fyrsti kostur fyrir okkur sem samfélag að leitast við að byggja þessa þjónustu upp hér og senda menn, þá sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda, ekki til annarra landa ef sú þjónusta er fyrir hendi hér á landi.