155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

sjúkratryggingar.

260. mál
[16:10]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Óla Birni Kárasyni fyrir spurninguna. Spurningin er orðrétt: Kjörið tækifæri til að afgreiða réttindi, að sækja hana til innlendra aðila. Þetta er auðvitað risaspurning, hún felur auðvitað líka í sér pólitíska sýn á það hvernig við viljum byggja upp og byggja áfram okkar félagslega heilbrigðiskerfi, sem ég held að þjóðarsátt sé um. Óháð því hvaða rekstrarform er á tiltekinni þjónustu, af því að við höfum byggt upp hér til áratuga blandað kerfi — ég hef það lítinn tíma að ég geta ekki farið djúpt í það. En ég get alveg svarað þessu játandi. Ég held að það sem skipti öllu máli, af því að við erum með opinbert tryggingakerfi, félagslegt heilbrigðiskerfi, sé að við nýtum alla krafta kerfisins. Við höfum stigið skref í þessa veru af því að hér er verið að lögfesta það að ef biðtíminn verður of langur er Evrópurétturinn þannig að þú getur leitað erlendis í þjónustu. Það er alveg hægt að færa jákvæð rök fyrir þessu. En það skiptir líka máli og er skilvirkara og kostnaðarminna, það hefur sýnt sig, að greiða fyrir þessa þjónustu hérlendis, taka álagið af sjúkrahúsunum og nýta alla getuna í kerfinu. Það hefur reynst mjög vel, og hefur m.a. nýst sjúkrahúsinu vel í nýtingu á öðrum flóknari aðgerðum.

(Forseti (ÁLÞ): Forseti vill biðja bæði þingmenn og ráðherra að virða tímann.)