155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

sjúkratryggingar.

260. mál
[16:12]
Horfa

Óli Björn Kárason (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svörin. Það er kórrétt, sem hæstv. ráðherra bendir á, að við erum hér að reka sameiginlegt tryggingakerfi. Það tryggingakerfi hefur þann tilgang að tryggja að allir sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda geti sótt hana þegar þeir þurfa á henni að halda alveg óháð rekstrarformi. Þess vegna legg ég áherslu á að við notum tækifærið, nýtum tækifærið, og gerum það alveg skýrt að réttindi sjúklinga verði í forgrunni og þeirra þarfir í forgrunni og að fé skuli fylgja þeim eins og í raun er grundvallarloforðið með sjúkratryggingum. Loforðið er að tryggja að þú hafir aðgengi að þeirri þjónustu sem þú þarft á að halda þegar þú þarft á henni að halda. Það er eitthvað skrýtið, finnst mér, við 9. gr. Ég óttast að 9. gr. þessa frumvarps gangi pínulítið á skjön við þetta og rýri stöðu innlendra þjónustuveitenda í heilbrigðisþjónustu. (Forseti hringir.) Þetta er eitthvað sem hv. velferðarnefnd þarf að skoða sérstaklega.