155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

sjúkratryggingar.

260. mál
[16:13]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Óla Birni Kárasyni fyrir mjög góða spurningu. Ég er sannfærður um að hv. velferðarnefnd mun taka þetta atriði fyrir. Hér erum við raunverulega að setja í lög Evrópureglur sem við höfum fylgt. Það er hins vegar tvennt — ég get ekki afgreitt það hér á hálfri mínútu — sem hlýtur að koma til í þessari umræðu. Það er annars vegar að við erum á góðri leið með að þróa þjónustutengda fjármögnun. Þar verð ég að hrósa sjúkrahúsunum okkar fyrir mjög góða vinnu og þeim aðilum sem þar koma að. Það mun auka gagnsæi verulega og mun styðja við það að ólíkar meðferðir kalla á ólíka fjármögnun sem getur þá fylgt þar sem aðgerðin á sér stað. Hitt er að biðtími er ekki sama og biðtími. Við erum með almenn viðmið sem eru 90 dagar, það á ekki við í öllum tilvikum. (Forseti hringir.) Ég bara ítreka hér tilvísun í gæðaskýrslu landlæknis, til að mynda um liðskiptaaðgerðir.