sjúkratryggingar.
Frú forseti. Samningur við sérgreinalækna er rétt rúmlega eins árs en ég vil rifja það upp með hæstv. heilbrigðisráðherra og hv. þingmönnum sem hér eru að samningarnir voru þar áður lausir í fjögur og hálft ár og undir lok þess tímabils ríkti hér ófremdarástand þar sem sérgreinalæknar gátu rukkað sjúklinga fyrir heimsóknir og aðgerðir eins og þeim sýndist. Þeir voru samningslausir við ríkið. Þetta bitnaði harkalega á langveiku fólki, öryrkjum sem hafa lítið handa á milli og bara á alls konar fyrirbyggjandi aðgerðum. Þetta var ástand sem við viljum ekki sjá aftur. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra: Hvers vegna er ekki komið í veg fyrir það með lögum, núna þegar verið er að breyta lögum um sjúkratryggingar, að slíkt ástand geti skapast hér aftur?