sjúkratryggingar.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Oddnýju Harðardóttur fyrir þessa fyrirspurn. Af hverju erum við ekki að koma í veg fyrir þetta ófremdarástand með lögum? Ég tek undir með hv. þingmanni. Við höfum átt samtöl hér um þessa stöðu sem uppi var á þeim tíma. Ég lagði mjög mikla áherslu á það þegar ég kom inn í ráðuneytið að fylgja stefnu um jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu, óháð efnahag, vegna þess að þessi staða bitnaði einmitt á viðkvæmustu hópunum; langveikum, öryrkjum og fötluðu fólki. Ég held að hv. þingmaður hafi nú verið með mér á þeim fundi þar sem sérstök skýrsla ÖBÍ var gefin út og þess vegna fagnaði ég því að ná þessum samningum. Það er rétt sem hv. þingmaður kemur inn á að þarna þarf að semja. Ég bara velti því þá upp hér með hv. þingmanni hvort hv. þingmaður sé að leggja það til að við setjum það í lög (Forseti hringir.) að það verði alltaf samið eða einhver tímatakmörk, eða til hvers er hv. þingmaður að vísa?