sjúkratryggingar.
Frú forseti. Ég hef nú lagt fram frumvarp sem ver fólk fyrir slíku ástandi, sem er breyting á 38. og 49. gr. þeirra laga sem við erum hér að fjalla um og gengur út á það að þegar samningar hafa verið lausir í níu mánuði verði gripið inn í, því að í markmiðum með lögum um heilbrigðisþjónustu og lögum um sjúkratryggingar — og það stendur upp úr öllum hér að við viljum hafa heilbrigðisþjónustu óháð efnahag á Íslandi og þá eigum við að sýna með lögum að þannig verði það. Það er ekki nóg að ég og hæstv. heilbrigðisráðherra séum sammála um að hér eigi að vera heilbrigðisþjónusta óháð efnahag, við þurfum að koma í veg fyrir að þetta ástand endurtaki sig á fimm ára fresti og vari í mörg ár. Þetta var ekki í fyrsta skipti (Forseti hringir.) sem slíkt ástand kom upp. Það er rík þörf á því að við tökum á þessu með lögum (Forseti hringir.) og við eigum að nota ferðina núna þegar verið er að fjalla um lög um sjúkratryggingar.