155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

sjúkratryggingar.

260. mál
[16:19]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Oddnýju Harðardóttur fyrir að taka þetta mál hér upp. Það rifjast alveg upp fyrir mér nú þegar hv. þingmaður fer yfir málið að við áttum samtal um þetta frumvarp sem hv. þingmaður vísar í og hefur komið inn á áður. Það er rétt að það þarf að skoða þetta út frá einhverjum tímabundnum skilyrðum og önnur skilyrði þarf að setja ef þessi vonda staða — þetta er ófremdarástand. Þetta er vond staða vegna þess að í þessu samningsleysi er umbúnaðurinn þannig að viðkomandi aðilar geta rukkað aukagjöld, þjónustuveitendur geta rukkað aukagjöld sem koma sér illa fyrir þá hópa sem við ræddum og er bara í andstöðu við þá stefnu sem við erum öll sátt við. Mér finnst það auðvitað algerlega við hæfi að nefndin taki það upp. Ég geri ráð fyrir því að hv. þingmaður — og eins og 1. umræða á að leiða fram (Forseti hringir.) þá verði þetta tekið fyrir í hv. velferðarnefnd og mér fyndist það bara algerlega við hæfi. (Forseti hringir.) Ég get bara algjörlega samsinnt hv. þingmanni í því að það er akkúrat rétti vettvangurinn til að ræða þetta í tengslum við þetta frumvarp.