155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

hringrásarstyrkir.

5. mál
[16:34]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég kem ekki hingað upp í andsvar heldur til þess að lýsa því yfir að mér líst afar vel á þetta þingmál og ég er því efnislega sammála. Ég held að það sé mikilvægt, eins og hv. þingmaður talaði um í sinni framsöguræðu, að ýta undir það að við nýtum hlutina okkar betur og það borgi sig að laga hluti svo að við getum notað þá betur en þurfum ekki eða finnist við ekki þurfa að kaupa nýtt þegar hægt væri að nota lengur. Það er einmitt það sem náttúran okkar þarf á að halda, þ.e. að við nýtum það sem við fyrir eigum lengur. Ég séð að það virðast ekki hafa komið umsagnir um málið síðast þegar það var lagt fram. Ég vona að einhver taki við sér núna og sendi inn umsagnir. Við fyrstu sýn sýnist mér það hvernig þetta er sett upp með hvötum og hvernig á að halda utan um málið líta allt saman nokkuð vel út en það væri óskandi að fá fram umsagnir um þessa þætti.

Ég vildi fyrst og fremst koma hingað upp til að segja að efnislega styð ég málið og tel raunar að það gildi um fleiri af okkur í þingflokki Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs því að við erum sammála hv. þingmanni um að við þurfum að endurnota og gera við.