155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

hringrásarstyrkir.

5. mál
[16:37]
Horfa

Flm. (Andrés Ingi Jónsson) (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni stuðningsræðuna. Það er einföld ástæða fyrir því að ekki komu umsagnir á síðasta löggjafarþingi og það var bara vegna þess að ekki náðist að mæla fyrir málinu þá. Ég reikna með að við munum einmitt fá jákvæðar umsagnir frá ýmsum aðilum. Það skemmtilega við þetta mál er að hægt er að nálgast það úr svo ólíkum áttum en vera samt jákvæður fyrir því. Umhverfisverndarsinnar sjá hér gott dæmi um réttláta loftslagsaðgerð, leið til að hjálpa fólki til að breyta hegðun sinni í átt að umhverfisvænni lifnaðarháttum án þess endilega að gera það með boðum og bönnum. Þegar kemur að einstaklingum þá held ég að það sé oft betri leið að vera með svona stuðningskerfi. Hægri mennirnir í salnum gætu skoðað þetta mál og hugsað: Heyrðu, hér er dálítið snotur leið til að efla aðeins efnahagslífið og búa til hvata fyrir litla einyrkja að stofna lítil fyrirtæki. Það eru þau sem skilja mest eftir í samfélaginu. Það eru ekki endilega stórfyrirtækin með stóru arðsemiskröfuna heldur þessi pínulitlu sem geta staðið undir dálítið mörgum vinnandi höndum fyrir hverja krónu sem fer í gegn.

Allt að einu vænti ég þess að við verðum fleiri sem lítum þetta mál jákvæðum augum í þeirri þinglegu meðferð sem er fram undan. Í raun bíð ég bara spenntur eftir því að sjá umsagnir sem geta togað málið í einhverjar áttir og gert það enn betra en það er.