155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

bókmenntastefna fyrir árin 2025--2030.

263. mál
[16:44]
Horfa

Teitur Björn Einarsson (S):

Frú forseti. Það er margt gott við þessa þingsályktunartillögu frá hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra. Auðvitað eru, held ég, allir sammála um þau markmið og þá framtíðarsýn sem kemur fram í fyrstu köflunum. Það er mikilvægt að hlúa að íslenskri menningu og bókastarfsemi og huga að rituðu máli. Þó ekki væri nema fyrir stöðu íslenskrar tungu og þá þýðingu sem hún hefur fyrir okkur sem þjóð. Ég ætla ekki að hafa hér langa ræðu heldur koma eilítið inn á örfá atriði sem eru tölusettir liðir í aðgerðaáætluninni sem ég tel að þurfi að skoða nánar. Reyndar er það svo að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins í heild sinni setur svona almenna fyrirvara við þau atriði sem eru í 6.–10. tölulið og 12. tölulið um að fara í frekari útgjaldavöxt, svo sem með því að fjölga stofnunum. Þetta eru atriði sem þingheimur verður að gaumgæfa vel. Hvernig er rétt að forgangsraða fjármunum, hvernig er fjármunum varið og hvernig á að ráðstafa þeim fjármunum sem þegar er veitt til þessa málaflokks til að þeir nýtist sem best? Þetta eru almenn atriði sem ég tel að þingið eigi svo sem alltaf að hafa í huga þegar þingsályktunartillögur eins og þessi eru til umfjöllunar.

En atriðið sem ég ætla að staldra örlítið við er í 4. lið sem heitir: Mat á kostum fastverðsfyrirkomulags fyrir bóksölu. Hér er atriði, ef maður skilur rétt hvað verið er að fara fram á, sem er einfaldlega verðstýring á bókum — almennt er verðstýring afar vond hugmynd, einfaldlega vegna þess að hún gengur aldrei upp, hún skilar aldrei þeim markmiðum sem stefnt er að. Þetta er góður ásetningur en ekkert meira en það. Endastöðin er einhvers staðar allt annars staðar þegar verðstýringu er beitt. Þá má spyrja ýmissa spurninga og það verður væntanlega viðfangsefni þingsins og nefndarinnar að svara þessum spurningum: Hver á að ákveða verð á bókum? Hver á að ákveða ríkisverð á tilteknum bókum? Hvaða liði á að setja undir? Hvernig á ríkið til að mynda að geta komist að því hver framleiðslukostnaðurinn er? Er það endilega það sem ræður þegar verið er að ákveða verð, bara framleiðslukostnaðurinn? Eða er það hugmynd neytenda um hvað bók eigi að kosta? Eða hvað neytandinn er tilbúinn að borga fyrir bók? Það eru margs konar vandamál sem fylgja því að ætla að skoða frekari verðstýringu. Þetta getur hamlað samkeppni. Þetta getur fest í sessi lélegar leiðir, hindrað framþróun, hindrað tækniframfarir. Almennt er það vond hugmynd að ætla að taka út fyrir sviga lögmál markaðarins um framboð og eftirspurn, þar sem allir verða alltaf að leita allra leiða til að bjóða sem best verð með sem hagkvæmustum hætti fyrir neytendur. Það er einfaldlega verkefnið. Hitt er svo annað mál hvort halda eigi áfram eða gefa í niðurgreiðslur sem bókaútgefendur njóta. Það er annars konar stuðningur, sennilega einfaldari í framkvæmd en hann er líka jafn umdeildur út frá þeim atriðum sem ég var að nefna hér.

Heilt yfir styð ég þau markmið sem er að finna í þessari þingsályktunartillögu. Þau eru góð og gild og eru mikilvæg. En það er eðlilegt að við ræðum aðeins um þær leiðir sem að er stefnt til að ná þessum markmiðum. Þá verðum við að spyrja þeirrar spurningar hvort fjármunum sé skynsamlega varið, hvort þeir séu nýttir með sem bestum hætti, til að ná þeim markmiðum sem að er stefnt. Ég held að það væri heppilegast að 4. töluliður aðgerðaáætlunar, sem miðar að því að skoða hvort setja eigi verðstýringu á bækur, falli hreinlega á brott.