bókmenntastefna fyrir árin 2025--2030.
Virðulegur forseti. Ég sé mig knúna til að koma hér í andsvör vegna innleggs hv. þingmanns. Í fyrsta lagi ber að nefna að hér er ekki verið að tala um að fjölga stofnunum heldur frekar að reyna að einfalda stofnanaumgjörðina og styrkja þannig Miðstöð íslenskra bókmennta. Eitthvað virðist hafa skolast til hjá þingmanninum varðandi þá ályktun. Í öðru lagi er það 4. liðurinn, sem fjallar um mat á kostum fastverðsfyrirkomulags fyrir bóksölu, og ástæðan fyrir þessu er sú að bæði Frakkar og Norðmenn hafa reynt það fyrirkomulag og telja að það hafi gjörbreytt umhverfi í umsýslu um bækur. Hér er aðeins verið að leggja til að þetta sé skoðað, það er ekki verið að koma þessu á.
Ég verð að segja, virðulegi forseti, að mér finnst gæta ákveðinnar þröngsýni og kannski ekki viðurkenningar á þeim vanda sem við stöndum frammi fyrir, þessi bókaþjóð. Það var að koma niðurstaða um hvernig áhugi ungra á því að lesa hefur hríðfallið. Og eitthvað þurfum við að gera. Við getum ekki bara verið hér og ekki tekist á við þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir. Við erum búin að leggja okkur gríðarlega fram, þessi ríkisstjórn, til að auka aðgengi að menningu og listum, styðja við bókaútgáfu, efla alla umgjörð í kringum tungumálið. Ég get bara sagt að ef við gerum það ekki þá er ekkert víst að þessi góða þjóðtunga okkar lifi áfram.