155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

bókmenntastefna fyrir árin 2025--2030.

263. mál
[16:52]
Horfa

Teitur Björn Einarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Það kann auðvitað að vera að ýmislegt skolist til hjá mér, það gerist líklega á hverjum degi. Ég fagna því að ráðherra hafi útskýrt málið nánar og sé sammála mér um mikilvægi þess að við hugum að þeirri kjarnastarfsemi hvernig við nýtum fjármunina sem við ætlum í þennan málaflokk með sem skynsamlegustum og bestum hætti, gott og vel. En varðandi það að taka upp verðstýringu á bókum þá tel ég í fyrsta lagi að þó að einhverjir aðrir séu að gera einhverja vitleysu þá sé engin ástæða fyrir okkur til að herma það eftir. En það er þá æði mörgum atriðum ósvarað sem mér þætti vænt um að fá nánari útskýringar á. Hver á að ákveða hvaða tegundir bóka skal fastsetja verð á o.s.frv.? Og hvaða verð á að fastsetja? Eftir hverju á að fara o.s.frv.? Fyrir utan það hversu óskynsamlegt það er að halda að hægt sé að taka einhvern einn málaflokk og taka bara upp ríkisverðstýringu, ríkisverð á bókum. Ef þetta er svona góð hugmynd, af hverju er þetta ekki bara gert við allar nauðsynjar? Ríkisverð á brauði, mjólk — það er reyndar verðstýring á mjólk, það er óheppilegt dæmi hjá mér — og á öllum öðrum nauðsynjavörum eins og sófa eða sjónvarpi eða ísskáp sem er þarfaþing á hvert heimili? Ef þetta á að virka fyrir bækur, af hverju virkar þetta þá ekki almennt?