155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

bókmenntastefna fyrir árin 2025--2030.

263. mál
[16:54]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Hér komum við svolítið að kjarnanum í því hvernig við störfum. Hér er kynnt til sögunnar metnaðarfull bókmenntastefna fyrir árin 2025 til ársins 2031 og eitt af því sem kemur fram, hjá þeim sem starfa við framleiðslu á bókum og hafa kynnt sér þennan málaflokk mjög vel, er sú ósk að þetta sé skoðað. Hér er ekki verið að leggja þetta til heldur leggja mat á það hvort þetta sé mögulega gagnlegt. Ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni um að mér finnst útilokað að við förum að taka upp verðstýringu á hinu og þessu. En þetta er eitt af því sem hefur komið fram í samtali, samráði og samvinnu þeirra aðila sem komu að þessari vinnu. Með fullri virðingu fyrir hv. þingmanni eða ráðherranum sem hér stendur störfum við ekki við það að framleiða bækur og þetta er eitt af því sem hefur komið fram og við teljum að sé þess virði að skoða. Bæði Noregur og Frakkland telja að þetta hafi komið vel út. En hér er einvörðungu verið að leggja til að þetta sé skoðað, það er ekki verið að samþykkja það eða fjölga stofnunum eða neitt slíkt. Við verðum að gera þá kröfu að í stað þess að gefa sér einhverjar forsendur, sem eru jafnvel ekki til staðar, skoði hv. þingmenn hvað verið er að leggja til áður en þeir leggjast alfarið á móti því.