155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

bókmenntastefna fyrir árin 2025--2030.

263. mál
[16:56]
Horfa

Teitur Björn Einarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég er einvörðungu að lýsa því yfir að þetta er vond hugmynd og færi fyrir því rök. Í sjálfu sér má hæstv. ráðherra skoða hvað sem er og þarf ekki atbeina þingsins í formi þingsályktunartillögu til að velta því upp hvort þetta sé fýsileg hugmynd eða ekki. Hæstv. ráðherra getur skipað starfshóp eða vinnuhóp eða hvað sem er til að móta sína stefnu og komist að því hvort þetta er góð hugmynd eða ekki. Og ef þetta er góð hugmynd þá getur hæstv. ráðherra lagt frumvarp fyrir Alþingi þar sem slíkt er útfært og séð hvort samhljómur sé með þeirri hugmynd í þinginu eða ekki. En ég er einvörðungu að lýsa því hér á þessu stigi máls að verðstýring á bókum er vond hugmynd.