155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

bókmenntastefna fyrir árin 2025--2030.

263. mál
[16:57]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Ég er að sjálfsögðu fullmeðvituð um það að við getum komið hér fram með stefnu og er fullmeðvituð um það hvernig við gerum hlutina; það er býsna sérstakt, verð ég að segja, að hv. þingmanni detti í hug að ráðherrann átti sig ekki á því. Ástæðan fyrir því að við komum hér fram með stefnu í öllum þessum mikilvægu málaflokkum, hvort sem það eru bókmenntir, tónlist, kvikmyndir eða hönnun, og leggjum hana fyrir Alþingi Íslendinga er sú að við teljum að það sé mikilvægt að málið fái skoðun. Hv. þingmaður kemur hér og segir: Ég er bara mótfallinn þessu. Ég vil einmitt fá umræðu eins og þessa. Ef til er grunnur að einhverju í lífinu þá er það lestur og að við séum vel lesin þjóð. Við sjáum vísbendingar um að staðan sé ekki eins góð og við hefðum viljað að hún væri. Hér er gerð tilraun til að efla enn frekar íslenskar bókmenntir og það eru kostir og gallar við sumar af þeim tillögum sem hér liggja fyrir. En ég verð að segja eins og er, virðulegi forseti, að ég hefði haldið að það væri jákvætt að ráðherra kæmi fram með stefnu sem er unnin í samvinnu við þá sem best þekkja til og að málið sé svo rætt hér einmitt til þess að fá fram mismunandi skoðanir á málinu.