155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

bardagaíþróttir.

8. mál
[17:00]
Horfa

Flm. (Berglind Ósk Guðmundsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Við Íslendingar erum svo heppin að eiga afreksfólk í blönduðum bardagaíþróttum og hnefaleikum. Það er þó eiginlega lygilegt þar sem því er ekki leyft að keppa í sinni íþrótt hérlendis. Við ræðum því hér frumvarp sem leggur til lögleiðingu þessara greina með öryggi keppenda að leiðarljósi.

Fortakslaust bann er við atvinnumennsku í þessum íþróttagreinum. Með lögum nr. 92/1956 voru hnefaleikar bannaðir og varðar brot gegn ákvæðum laganna sektum. Við fögnum því að eftir tvö ár verða lögin sjötug og ég vona að við náum að fagna þeim áfanga með því að vera búin að fella þau brott. Með lögum nr. 9/2002 voru svo áhugamannahnefaleikar heimilaðir og hefur íþróttin vaxið ár frá ári. Hundruð barna og ungmenna æfa hnefaleika og blandaðar bardagaíþróttir en vitað er hversu mikilvægt það er að hafa fyrirmyndir í sinni íþrótt til að setja markmiðið hátt. Öll þekkjum við líka forvarnagildi íþrótta og mikilvægi þess að börn stundi íþróttir sem lengst og getur frumvarp þetta verið liður í að sporna við því mikla brottfalli barna í íþróttum sem verður oft á unglingsárum.

Óumdeilt er að grundvallarmunur er til staðar á bardagaíþróttum og öðrum tengdum íþróttum, enda hafa hnefaleikar og blandaðar bardagaíþróttir þann tilgang og markmið að keppendur veiti hver öðrum högg eða spörk, m.a. í höfuð. En iðkendum er auðvitað fullljóst hverjar hætturnar eru og vert er að nefna að allar íþróttir eru auðvitað ekki með öllu áhættulausar. Má þar til að mynda nefna knattspyrnu, hestaíþróttir og akstursíþróttir. Það eitt að þau högg eða spörk sem valdið geta meiðslum við iðkun bardagaíþrótta séu framkvæmd af ásetningi eru ekki haldbær rök fyrir því að banna skuli bardagaíþróttir. Fyrir slasaðan íþróttamann breytir engu hvort meiðslunum hafi verið valdið af ásetningi andstæðingsins eða ekki, hinir líkamlegu áverkar eru þeir sömu óháð huglægri afstöðu andstæðingsins.

Eigi að síður er vitaskuld rétt að líta til sérstöðu bardagaíþrótta við lögleiðingu þeirra. Því er í frumvarpinu lagt til að öll keppni þar sem þátttakendum er gert kleift að sparka eða slá í höfuð andstæðingsins verði háð leyfi hins opinbera. Skilyrði slíkrar leyfisveitingar er að keppendum sé tryggt viðunandi öryggi, sbr. 2. gr. frumvarpsins. Jafnframt er mælt fyrir um heimild ráðherra til að setja leyfisveitingu frekari skilyrði með það í hyggju að tryggja öryggi keppenda.

Jafnframt ber að hafa í huga að í banni við bardagaíþróttum felst einnig skerðing á atvinnufrelsi fólks, sem nýtur verndar 1. mgr. 75. gr. stjórnarskrárinnar, og óheimilt er að takmarka það frelsi nema með lögum nema almannahagsmunir krefjist þess. Í ljósi þess að flest vestræn ríki heimila bardagaíþróttir, m.a. Danmörk og Svíþjóð, er vandséð að almannahagsmunir á Íslandi krefjist þess að þær séu bannaðar, á meðan slíkir almannahagsmunir virðast almennt ekki vera til staðar í öðrum ríkjum. Nú er það svo að við erum samanburðarhæf við ríki eins og Norður-Kóreu og Íran með þessu fortakslausa banni. Mikilvægt er að stjórnarskrárvarin mannréttindi borgaranna séu ekki takmörkuð frekar en þörf er á og ávallt sé leitast við að tryggja frelsi einstaklinga til athafna. Frumvarp þetta er að miklu leyti byggt á sænskri löggjöf um bardagaíþróttir sem hefur reynst vel þar í landi og auðvitað er ekki tilefni til þess að ætla að annað eigi við á Íslandi.

Í fyrirspurnatíma á Alþingi vorið 2023 hvatti ég ráðherra íþróttamála til að ganga í málið og hef ég nú í þrígang lagt þetta frumvarp fram. Eins og ég kom að hér á undan miðar lögleiðingin fyrst og fremst að því að tryggja öryggi keppenda og að heimila okkar frábæra afreksíþróttafólki að keppa í sinni íþróttagrein hérlendis. Það er eðlilegt og sanngjarnt að búa svo um lagaumgjörðina okkar. Það er löngu tímabært að skrefið verði tekið. Alla vega ættu þingmenn hér, sem eru eflaust hvað vanastir því að taka höggi, já, og kannski bregða fæti fyrir andstæðinga sína, að bera virðingu fyrir þeim sem leggja þessar íþróttir fyrir sig og lögleiða íþróttagreinarnar. Ég legg því til að við lok 1. umræðu verði málinu vísað til allsherjar- og menntamálanefndar.