155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

meðferð sakamála.

44. mál
[17:05]
Horfa

Flm. (Hildur Sverrisdóttir) (S):

Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um meðferð sakamála, um hámarkstíma sakamálarannsókna. Ég held að við öll í þessum sal getum verið sammála um að réttarríkið sé grundvöllur sanngjarns og góðs samfélags. Réttur manna til réttlátrar málsmeðferðar nýtur ríkrar verndar, bæði í stjórnarskránni sem og alþjóðlegum mannréttindasáttmálum. Rétturinn nær ekki einungis til málsmeðferðar fyrir dómi heldur einnig á rannsóknarstigi. Fyrir liggja fjölmargir dómar Hæstaréttar og mannréttindasáttmála um að óhóflegur dráttur á rannsókn sakamála feli í sér brot gegn réttlátri málsmeðferð. Engu að síður er hvergi að finna nokkurs konar takmörkun á rannsóknartíma í sakamálalögum. Það er ekkert því til fyrirstöðu að mál geti verið til rannsóknar hjá lögreglu í lengri tíma til þess eins að vera felld niður. Slík tilvik hafa því miður komið upp en þau voru sérstaklega áberandi á árunum eftir hrun þar sem fjöldi fólks sem starfaði hjá fjármálastofnunum hafði réttarstöðu grunaðs manns svo árum skipti og það jafnvel án þess að rannsóknin hafi verið virk megnið af tímanum.

Markmið þessa frumvarps er að bregðast við þessum vanda. Kveðið er á um að rannsóknir sakamála skuli að jafnaði ekki vara lengur en eitt ár. Frumvarpinu er þó ekki ætlað að takmarka möguleika lögreglunnar við rannsókn flókinna mála eins og til að mynda skipulagðrar brotastarfsemi. Því er lögreglu gefinn sá kostur að framlengja rannsókn sakamála þegar svo ber undir en í frumvarpinu er skýrt kveðið á um að lögregla geti óskað eftir heimild dómstóla til að framlengja rannsókn málsins um ár í senn í allt að fimm ár til að bregðast við stærri sakamálarannsóknum sem eðlilegt er að taki lengri tíma. Eina skilyrðið er að rannsóknin hafi verið virk og nauðsynlegt sé að halda henni áfram. Jafnframt er lögreglunni heimilt að hafa mál til rannsóknar lengur en fimm ár ef tafir verða á rannsókn málsins vegna ólögmætrar háttsemi sakbornings eða fyrirsvarsmanns hans. Í þeim tilvikum mælir frumvarpið ekki fyrir um neitt hámark enda er markmið frumvarpsins ekki að búa til glufur fyrir sakborninga til að ónýta rannsókn á hendur sér, að sjálfsögðu ekki, heldur einungis að halda lögreglunni við efnið og gæta þess að rannsóknum sem ekkert miðar og ekki er tilefni til að halda áfram sé hætt í stað þess að málin séu látin dúsa í kerfinu, jafnvel árum saman, með tilheyrandi tjóni fyrir þann sem rannsókninni sætir.

Í opinberri umræðu um frumvarpið hafa komið í ljós áhyggjur sumra af áhrifum þess á rannsókn kynferðisbrotamála. Ég get vel skilið þær áhyggjur. Í frumvarpinu er eins og áður segir skýrt kveðið á um að lögregla geti óskað eftir heimild dómstóla til að framlengja rannsókn málsins um ár í senn í allt að fimm ár. Ég veit ekki um nein dæmi þess að einhver hafi haft réttarstöðu sakbornings í kynferðisbrotamáli í meira en fimm ár. Ég get því ekki séð hvernig þetta frumvarp á að hafa áhrif á rannsókn slíkra mála að öðru leyti en að rannsóknin gangi hraðar fyrir sig í kjölfar hinnar auknu kröfu á lögreglu um að mál sitji ekki hreyfingarlaust á borði hennar. Í kynferðisbrotamálum hefur verið þungt hvað sönnunarbyrðin og sönnunarstaðan er erfið. Ég veit ekki betur en að allir séu sammála um að sönnunarstaðan er auðveldari þegar málin eru skemur í tíma þegar rannsókn á sér stað. Þannig að þvert á móti myndi ég halda, forseti, að þetta frumvarp myndi styrkja þá sönnunarstöðu frekar en hitt.

Mikilvægt er að gera þá kröfu til lögreglu að rannsókn sé virk en mál ekki sett upp á hillu árum saman á meðan sakborningur bíður þess milli vonar og ótta hvort hann muni sæta ákæru eður ei. Hin íþyngjandi áhrif þess að sæta stöðu sakbornings eru ekki eingöngu hin neikvæðu sálrænu áhrif sem það hefur eðli máls samkvæmt. Það að hafa réttarstöðu grunaðs manns getur einnig haft bein og óbein áhrif á daglegt líf manna. Til að mynda er það skilyrði fyrir veitingu ríkisborgararéttar að umsækjandi hafi ekki ólokin mál í réttarvörslukerfinu. Jafnframt er heimilt að víkja embættismönnum tímabundið úr starfi á sama grundvelli og þá eru enn ótalin þau áhrif sem réttarstaða sakbornings hefur á starfsframa manna og sá álitshnekkir sem það er að vera grunaður um refsiverða háttsemi.

Ákvörðun lögreglu um að veita manni réttarstöðu sakbornings verður ávallt að vera tekin að vel ígrunduðu máli, byggð á sterkum rökum með meðalhóf að leiðarljósi. Það sama verður að eiga við um ákvörðun hennar um að viðhalda rannsókn máls. Því er mikilvægt að lögreglu verði skylt að endurmeta rannsókn mála með reglulegu millibili til að leggja mat á hvort tilefni sé til að halda rannsókn áfram. Ég tel að ef slíkum reglum hefði verið til að dreifa á árunum eftir bankahrunið hefðu margir losnað undan réttarstöðu sakbornings mun fyrr en raunin varð þar sem engar kröfur voru á lögreglu um neitt annað en að mega láta viðkomandi rannsókn dangla eins lengi og lögreglu sýndist í raun.

Þrátt fyrir allt það tjón og óþægindi sem óhóflegur rannsóknartími getur valdið einstaklingum fá þeir það ekki á nokkurn hátt bætt sé rannsókn máls felld niður eftir dúk og disk. Maður getur haft réttarstöðu grunaðs manns í áratug, og málið jafnvel ekki verið í virkri rannsókn í mörg ár, án þess að fá neinar bætur fyrir þegar málið er svo fellt niður, þrátt fyrir að lögreglan hafi brotið gegn rétti hans um réttláta málsmeðferð. Að mínu mati er það óboðlegt að ríkisvaldið geti gengið þannig fram gagnvart borgurum landsins án nokkurra afleiðinga. Því er í frumvarpinu lagt til að sæti maður rannsókn lengur en lög heimila eigi hann rétt á bótum úr hendi ríkisins. Það sama á við vegna rannsókna sem vara lengur en eitt ár, eru að lokum felldar niður af lögreglu eða sakborningur sýknaður fyrir dómi. Að baki því liggur það einfalda sjónarmið að þeir sem ekkert hafa sér til saka unnið eigi ekki að sæta íþyngjandi ákvörðunum stjórnvalda.

Frumvarp þetta gagnast ekki einungis þeim sem sakaðir hafa verið um efnahagsbrot heldur öllum öðrum, hvort sem það eru bankamenn, blaðamenn eða bara hver sem er, því að enginn á að þurfa að bera þá þungu byrði að sæta rannsókn lögreglu lengur en nauðsyn krefur. Frumvarpið snýr eingöngu að því að tryggja að allir, hvort sem mál þeirra eru felld niður, þeir sakfelldir eða sýknaðir, njóti þeirra sjálfsögðu mannréttinda að hljóta réttláta málsmeðferð bæði fyrir dómi og hjá handhöfum ákæruvaldsins. Auk þeirrar breytingar sem ég hef nú þegar reifað er í frumvarpinu kveðið á um að lögreglu sé skylt að fella niður rannsókn mála ef í ljós kemur að kæran sem rannsóknin byggir á er ekki á rökum reist. Í gildandi lögum er lögreglu ekki skylt að fella niður mál í slíkum tilvikum heldur einungis heimilt. Því er samkvæmt lögreglulögum heimilt að viðhalda rannsókn máls, jafnvel þótt fyrir liggi að kæra sé ekki á rökum reist. Að mínu mati er algjörlega ótækt að lögreglu sé heimilt að halda áfram rannsókn án þess að tilefni sé til enda gengur það bersýnilega gegn öllum sjónarmiðum um meðalhóf og jafnræði.

Forseti. Með lögum skal land byggja og lög og regla er samfélagssáttmáli sem við verðum öll að undirgangast svo að við fáum áfram notið þess öryggis sem við búum við hér í friðsælasta ríki heims. En þar eru blikur á lofti. Við horfumst í augu við ógnir, um margt breytta samfélagsásýnd alla vega. Skipulögð brotastarfsemi er eitthvað sem við hér í þessum sal verðum að taka alvarlega. Það er okkar verkefni og hlutverk að passa borgara þessa lands. Lögreglan verður því að sjálfsögðu að geta sinnt sínum störfum eins og nauðsynlegt er og hafa öll nauðsynleg tæki og tól til að gera það sem við treystum á að lögreglan geri til þess að vernda öryggi okkar. En það er líka nauðsynlegt í góðu samfélagi að virða mannréttindi sakborninga eins og kostur er, virða samfélagssáttmálann sem við undirgengumst blessunarlega fyrir löngu um að sakleysi uns sekt er sönnuð verði að vernda. Það er angi af þeim sáttmála, sem krefst athygli okkar, að draga úr tímanum sem það tekur að fá úr því skorið. Það skiptir máli.

Ég vil að lokum, forseti, fara örsnöggt yfir þær gagnrýnisraddir sem heyrðust þegar ég viðraði í vor að ég væri að koma fram með þetta frumvarp, því að mér gafst ekki kostur á að mæla fyrir því þá. Ég vil af því tilefni fá að gera skýran greinarmun á því að það skiptir annars vegar ofboðslega miklu máli að allir lúti sömu reglum í okkar samfélagssáttmála og lögreglan þurfi til þess öll tæki. Það er ekki vilji minn eða neinna þeirra sem standa að þessu frumvarpi með mér að gera lítið úr því, að gefa einhvern afslátt af því. Það kemur ekki til greina. En ef lögregla er ekki með tilhæfulausa rannsókn á sínu borði þá ætti lögreglu að vera í sjálfsvald sett og tiltölulega auðvelt að færa þá tilhlýðandi rök fyrir því að þeirri rannsókn beri að halda áfram að ári liðnu, í eitt ár í senn. Ef við höfum áhyggjur af því að það að lögregla geti ekki fært rök fyrir því að þessari rannsókn skuli haldið áfram muni á einhvern hátt eyðileggja rannsókn hennar þá held ég að við séum að horfa öfugt á þau prinsipp sem hér eru undir.

Ég heyri líka, sem ég hef mikinn skilning á, að vandamálið sé að lögreglan sé bara of fjársvelt til að geta unnið svona hratt. Við því vil ég segja að við eigum alltaf að forgangsraða í þágu mannréttinda og réttarríkis hér í þessum sal. Það má vel færa rök fyrir því að lögreglan og ákæruvaldið þurfi meiri fjármuni. Það má vel vera rétt, ekki ætla ég að gera lítið úr því, en niðurskurður á mannréttindum getur ekki verið svar okkar við niðurskurði í fjárlögum. Það má ekki vera þannig.

Ég heyri því líka fleygt að þetta frumvarp myndi henda öllum sakamálum í ruslið eftir 12 mánuði. Þetta er ekki rétt. Það hefur enginn áhuga á því. Það er enginn að tala um að setja sakamál í ruslið eftir 12 mánuði. Í frumvarpinu er skýrt kveðið á um að lögregla geti óskað eftir heimild dómstóla til að framlengja rannsókn málsins um eitt ár í senn í allt að fimm ár. Eina krafan sem er gerð til lögreglunnar er að rannsóknin hafi verið virk og að nauðsynlegt sé að halda henni áfram.

Forseti. Mér þykir þetta ekki gríðarlega ósanngjarnar kröfur á lögregluna og minni á í hvaða stöðu sakborningar eru sem geta mögulega ekki sagt neitt eða gert neitt í mörg ár í þessari stöðu á meðan rannsóknin er mögulega ekki einu sinni virk. Það gengur ekki þannig. Mér finnst þetta ekki ósanngjarnar kröfur til lögreglunnar svo að það sé sagt.

Svo skil ég mætavel áhyggjur þeirra sem segja að stórar rannsóknir flókinna mála þurfi bara einfaldlega lengri tíma. Það er enginn að halda því fram að allar rannsóknir taki eitt ár, að sjálfsögðu ekki. Í frumvarpinu er skýrt kveðið á um að lögregla geti óskað eftir heimild dómstóla til að framlengja rannsókn málsins um ár í senn í allt að fimm ár. Og ég endurtek: Eina krafan sem er gerð til lögreglunnar er að rannsóknin hafi verið virk og að nauðsynlegt sé að halda henni áfram. Ef tafir á rannsókn máls eru til komnar vegna ólögmætrar háttsemi sakborningsins sjálfs eða fyrirsvarsmanns hans getur lögregla hins vegar haldið rannsókn málsins áfram lengur en í fimm ár. Það er aldeilis í boði. Ef rannsókn máls er með þeim hætti að ekkert er að gerast árum saman án þess að tilefni sé til að gefa út ákæru þá getur lögreglan hætt rannsókn málsins og tekið hana upp aftur ef ný gögn koma fram — ekkert að því — eða líklegt er að þau komi fram samkvæmt ákvæðum sakamálalaga.

Forseti. Ég hef þá reifað helstu atriði þessa frumvarps. Ég legg til að að þessari umræðu lokinni verði málið tekið til meðferðar í hv. allsherjar- og menntamálanefnd. Ég vil að lokum fá að minna á að gott samfélag þarf lög og reglu, öfluga lögreglu og að passað sé upp á öryggi borgaranna. Gott samfélag virðir líka mannréttindi og samfélagssáttmálann um að hver maður er saklaus uns það er búið að sanna sekt á hann. Kerfi eins og við búum við, frú forseti, passar ekki núna upp á mannréttindi þess fólks sem í þeirri stöðu er.