155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

meðferð sakamála.

44. mál
[17:23]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir mjög góða framsögu hér á þörfu máli. Ég er að velta fyrir mér, af því að við erum náttúrlega að tala um aðbúnað lögreglu, að frá því að ég kom á þing hefur þeim skipulögðu glæpahópum sem hafa verið kortlagðir af lögreglu fjölgað. Nú er verið að tala um að það geti verið allt að 12 skipulagðir glæpahópar hér, og lögreglan vanbúin. Mig langar að nefna dæmi og spyrja hv. þingmann pínulítið út í það. Það voru ungir herramenn sem lentu í einhverjum ryskingum í síðustu viku. Tveir þeirra voru lamdir í andlitið með steini, þeir stórslösuðust og annar þurfti að gangast undir stóra aðgerð. Þegar á að kæra þetta til lögreglu þá er sagt að þeir geti komið nú í lok október, fimm vikum eftir árásina. Mér skilst að þessi tafatími og annað slíkt sé eingöngu vegna þess að lögreglan er hreinlega ekki í stakk búin til að anna öllu því sem er lagt á hennar borð. Ég vil spyrja hv. þingmann: Verðum við ekki líka að reyna að koma í veg fyrir það, þegar verið er að kæra svona mál, þegar verið er að kæra ofbeldismál, og jafnvel eins og í þessu tilviki nánast tilraun til manndráps, þegar verið er að berja fólk með grjóti, stórum múrsteinum og öðru slíku, í höfuðið; hvort hv. þingmaður telji ekki ástæðu til þess að við tökum á okkur rögg og gerum betri og heildstæðari úttekt í samstarfi við lögregluna á því hvar skórinn kreppir. Það liggur í hlutarins eðli að ef einstaklingur er að koma að kæra fimm til sex vikum eftir að hann verður fyrir árás — okkur er gjarnt að gleyma hlutunum, jafnvel þó að það séu ekki gamlir einstaklingar í árum, það sem er nær í tíma er okkur meira í fersku minni. Það hlýtur að teljast mikilvægt að við getum komið hlutunum frá okkur sem allra fyrst þannig að hægt verði að vinna skipulega úr þeim.