meðferð sakamála.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég er auðvitað ekki að tala beint um það sem frumvarp hv. þingmanns fjallar um, um að tryggja það að enginn sé dæmdur öðruvísi en að sekt hans sé sönnuð, sbr. almenn hegningarlög. Og annað er að það er mjög nauðsynlegt að málin séu tekin fyrir hratt og örugglega. Þessa vegna tók ég þetta dæmi því að mér finnst það tengjast inn í það, þegar við sjáum að það er í raun ekki tími til að taka á málum. Er það ástæðan fyrir því að málin dragast svona lengi? Er það ástæðan fyrir því að við erum hér með stórglæpamenn sem kærur fyrnast jafnvel á vegna þess að ekki er pláss fyrir þá til þess að sitja af sér refsingar og annað slíkt? Og auðvitað veit ég hvað hv. þingmaður er að tala um, að það sé nauðsynlegt að fólk þurfi ekki að sitja undir því að vera með réttarstöðu sakborninga árum saman. Þetta er náttúrlega bara skammarlegt fyrir réttarríki eins og okkar.
Ég er aðallega að segja: Mér finnst þetta bara allt haldast í hendur, þegar ekki er hæg að taka ofbeldiskæru fyrir og viðkomandi getur ekki komið til lögreglu og gefið skýrslu og kært fyrr en fimm til sex vikum eftir að hann hefur orðið fyrir árás. Mér finnst þetta allt tengjast saman. Mér finnst þessi þróun á því hvernig tíminn hefur dregist úr hömlu hvað það varðar að geta gengið inn í mál og haldið þeim við í kerfinu — hv. þingmaður talar um innan árs og síðan sé hægt að framlengja því með tilliti til þess að lögreglan óski sérstaklega eftir því eða að ný gögn hafi borist í málinu. Ég ætla ekki að segja að þetta geti ekki haldist í hendur og hreinlega haldist í hendur eins og ég var að setja fram. En þar sem við erum alltaf með takmarkaðan tíma, og ég ætlaði ekki að fara í neina sérstaka ræðu um málið til að koma með einhverja samfellu, bendi ég samt sem áður á það í þessu tilviki, í takti við það sem hv. þingmaður setur fram í sínu góða frumvarpi, að skórinn kreppir víða. Mannekla er víða og skortur á tíma og getu til að afgreiða málin eins fljótt og örugglega og við viljum, og hv. þingmaður talar hér um í sínu ágæta frumvarpi.