meðferð sakamála.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingu Sæland aftur fyrir sitt andsvar og tek bara undir með henni hvað varðar þetta samhengi hlutanna sem við verðum að horfa á í einni heild. Þess vegna nefndi ég kynferðisbrotin sérstaklega í framsögunni áðan. Þau eru erfið brot út af sönnunarstöðu. Sönnunarstaðan verður þyngri eftir því sem tíminn líður. Það má alla vega ímynda sér og jafnvel færa að því rök að þegar búið er að setja ákveðinn ramma í kringum störf lögreglunnar, svona ákveðinn tímaramma, þá skapast hvati eða krafa til að vinna hluti hraðar. Bæði yrði sönnunarstaðan í kynferðisbrotamálum auðveldari eða ekki jafnþung og eins þau mál sem hv. þingmaður var hér að nefna. Það myndi bera að sama brunni. Þá ertu búin að búa til ramma í kringum lögregluna þannig að hin þungu ofbeldismál, þau sem eru undir, myndu vinnast hraðar. Þetta kerfi myndi ekki allt danka á hvorn veginn sem er.
Ég myndi halda að þrátt fyrir að hugsunin með þessu frumvarpi sé mannréttindatengd, út frá þeirri grundvallarhugsun að mér finnst bara ekki samræmast góðu réttarríki að við höfum engar reglur um það hversu lengi lögreglan geti verið að rannsaka mál og viðkomandi er bara með réttarstöðu sakbornings; það er grunnhugsunin í frumvarpinu. En ég get ímyndað mér að jákvæðu afleiðingarnar af skarpari ramma í kringum störf lögreglunnar myndi aðstoða við allt kerfið í heild. Ég þakka hv. þingmanni bara fyrir þessa punkta og tek bara undir.