samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Herra forseti. Ég mæli enn á ný fyrir frumvarpi til laga um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Með mér á frumvarpinu er þingflokkur Flokks fólksins ásamt þeim Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur, Gísla Rafni Ólafssyni, Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur.
Frumvarpið hljóðar svo, með leyfi forseta:
1. gr. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hefur lagagildi á Íslandi. Samningurinn um réttindi fatlaðs fólks er birtur sem fylgiskjal með lögum þessum.
2. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.
Í greinargerð með frumvarpinu segir m.a. að það hafi verið lagt fram allnokkrum sinnum áður og ekki náð fram að ganga og er nú lagt fram að nýju að mestu óbreytt.
Fatlað fólk hefur ávallt þurft að berjast fyrir sjálfsögðum mannréttindum. Það er ekki aðeins barátta gegn fordómum heldur einnig barátta gegn ofbeldi og barátta fyrir jafnrétti og sanngjörnum lífsgæðum. Mikið hefur áunnist í þeirri baráttu á undanförnum áratugum, bæði á Íslandi og á alþjóðavettvangi. Baráttunni er þó langt í frá lokið. Það er enn langt í land og nú er kominn tími til að stíga næsta skref í átt að réttlæti og jafnrétti.
Einn mikilvægasti áfanginn í þeirri réttindabaráttu er einmitt samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Samningurinn hefur það að markmiði að tryggja réttindi fatlaðs fólks til jafns við aðra. Í samningnum er fjallað um þau réttindi sem aðildarríkjum ber að tryggja fötluðu fólki og með hvaða hætti þau skuli tryggð. Ísland undirritaði samninginn strax á upphafsdegi hans, 30. mars 2007. Hugsið ykkur, 2007, það eru að verða 20 ár síðan, það eru 17 ár síðan. Undirritun alþjóðasamninga er almennt aðeins viljayfirlýsing, eins og var nákvæmlega í þessu tilviki, en fullgilding felur í sér þjóðréttarlega skuldbindingu til að uppfylla þær skyldur og tryggja þau réttindi sem alþjóðasamningar kveða á um. Árið 2016 samþykkti Alþingi loks að heimila ríkisstjórninni að fullgilda samninginn, sem sagt níu árum eftir að við skrifuðum undir viljayfirlýsingu þá fengum við að fullgilda samninginn og síðan eru liðin átta ár. Hann var í kjölfarið fullgiltur 6. desember 2016 og birtur í C-deild Stjórnartíðinda 29. júní 2017. Í rauninni tók þessi fullgilding ekki gildi sem slík fyrr en hún hafði verið auglýst í C-deild Stjórnartíðinda í júní 2017.
Almennt er viðurkennt að íslenskur réttur byggist á tvíeðliskenningu. Hvað skyldi nú felast í henni? Í henni felst að alþjóðasamningar sem Ísland er aðili að hafa ekki bein réttaráhrif. Til þess að alþjóðasamningar hafi bein réttaráhrif þarf að lögfesta þá. Það er ekki nóg að fullgilda og sýna viljayfirlýsingar og annað slíkt, tvíeðliskenningin felur það í sér að íslenski löggjafinn, við hér á háa Alþingi, verður að löggilda allt sem við viljum að sé virt og tekið mark á í alþjóðasamfélaginu. Þannig er með allar alþjóðlegar skuldbindingar okkar og þess vegna er það sem við erum að stimpla með stimpilpúða fyrir þá í Brussel í gegnum EES-samninginn. Við vissum um það á dögunum að það voru, held ég, 1.200 gerðir og tilskipanir frá Evrópusambandinu út af þessum EES-samningi sem ekki höfðu verið lögfestar, höfðu ekki verið stimplaðar af þinginu, lágu bara ofan í skúffu. Það liggur alveg á borðinu að ef við göngum ekki frá því á Alþingi og löggildum hér og stimplum hér þá kemur tvíeðliskenningin algerlega í veg fyrir það að löggjöfin í Brussel, þó að þeir séu búnir að senda hana hingað, nái fram að ganga og við þurfum að fara eftir henni. Við þurfum ekki fara eftir henni. Þannig að það ríður á og hefur alltaf riðið á að við lögfestum samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Þessi lögfesting yrði gríðarlega mikil réttarbót og myndi tryggja með lögum þau réttindi sem samningurinn kveður á um. Þess vegna hefur ítrekað verið kallað eftir því, bæði af hálfu ÖBÍ réttindasamtaka, Landssamtakanna Þroskahjálpar, Mannréttindaskrifstofu Íslands og almennings, að Alþingi lögfesti samninginn.
Árið 2019 samþykkti Alþingi tillögu um að fela ríkisstjórninni að undirbúa lögfestingu samningsins, fyrir fimm árum síðan, og leggja fram frumvarp þar um eigi síðar en 13. desember 2020, sem sagt í desember fyrir fjórum árum síðan. Í kjölfarið var ákveðið að þýða samninginn að nýju. Ný þýðing var lögð fram í mars 2021 og samþykkt á Alþingi í maí sama ár, fyrir ríflega þremur árum síðan. Nú stendur aðeins eftir að ganga formlega frá lögfestingunni. Ekki er seinna vænna enda sá frestur sem mælt var fyrir um í ályktun Alþingis löngu liðinn eins og svo oft áður og vill gerast. Í frumvarpi þessu er því lagt til að veita samningnum lagagildi á grundvelli þeirrar þýðingar sem samþykkt var á Alþingi þann 11. maí 2021.
Nokkur fjöldi umsagna barst um frumvarp þetta á t.d. 152., 153. og 154. löggjafarþingi. ÖBÍ réttindasamtök, Landssamtökin Þroskahjálp, Íslandsdeild Amnesty International, NPA-miðstöðin, þ.e. miðstöð um notendastýrða persónulega aðstoð, Mannréttindaskrifstofa Íslands, Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og réttindagæslumaður fatlaðra í Reykjavík og á Seltjarnarnesi lýstu yfir stuðningi við frumvarpið. Í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga kom fram að mikilvægt væri að kostnaðarmeta áhrif lögfestingar samningsins vegna þess að hún kynni að hafa fjárhagsleg áhrif á sveitarfélög. Nokkrir umsagnaraðilar gerðu athugasemd við að frumvarpið hefði farið til velferðarnefndar og töldu að það ætti frekar heima hjá allsherjar- og menntamálanefnd. Ég er ekki sammála því. Eldri þingmál sem vörðuðu samninginn hafi verið til umfjöllunar þar og þá sé lögfesting samningsins fyrst og fremst mannréttindamál frekar en velferðarmál. Það má náttúrlega líta í ýmsar áttir um þetta. Það hlýtur að vera ekki bara mannréttindamál heldur helst það í hendur við mannréttindi að það er gríðarleg velferð sem felst í því að komast á þann stað að fötlunin sé gerð eins aðgengileg og mögulegt er miðað við stöðu og líðan fólks og vanmátt gagnvart því að geta gengið og ferðast um í samfélaginu óhindrað. Hér eru gildrur úti um allt, það vita þeir sem eru í hjólastól t.d. og hafa þurft að leita sér aðstoðar eða ferðast um á milli stjórnsýslustofnana, jafnvel í hæstu hæðum í samfélaginu. Fötluðum í hjólastól er gert ómögulegt að komast ferða sinna, ómögulegt, þeim er úthýst hreint út sagt.
Það er vert að minnast sérstaklega á umsögn Ágústs Fannars Leifssonar um þetta frumvarp á dögunum. Hann nefnir mál sitt sem dæmi, sem hefur verið til meðferðar hjá stjórnvöldum og hefði mögulega farið á annan veg ef búið hefði verið að lögfesta samninginn. Um mikilvægi þess að lögfesta samninginn segir Ágúst: „[Samningurinn] segir að ég sé jafn mikils virði og aðrir þótt ég sé fatlaður. Hann segir að ófatlað fólk hafi búið til samfélag fyrir sig og gleymt fólki eins og mér þegar það bjó til lög og reglur og tók ákvarðanir fyrir samfélagið. Og hann segir að samfélagið eigi að aðlaga sig að mér og öðru fötluðu fólki.“
Undanfarið hefur þeirri mótbáru verið haldið fram að það sem standi í vegi lögfestingar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sé skortur á sjálfstæðri innlendri mannréttindastofnun sem uppfylli að fullu viðmiðunarreglur Sameinuðu þjóðanna um mannréttindastofnanir eða svokölluð Parísarviðmið.
Hér hefur velferðarráðherra boðað það að hann ætli sér að koma með þingmál núna í vetur og það er á hans þingmálaskrá að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Er það nema von að maður undri sig á því eftir hverju hefur verið beðið í öll þessi ár? Eftir hverju hefur verið beðið þegar Flokkur fólksins hefur ítrekað komið upp og mælt fyrir lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem hiklaust hefur verið fleygt í ruslið af stjórnvöldum, af ríkisstjórninni hiklaust? Samningurinn hefur aldrei fengið að koma hér í lýðræðislegt ferli á Alþingi Íslendinga. Hann hefur aldrei verið borinn undir vilja alþingismanna, kjörinna fulltrúa, til að athuga það hverjir myndu vilja lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og hverjir ekki.
Það er vegna þess að við, fatlað fólk, öryrkjar og fatlað fólk, erum byrði í íslenska excel-peningaskjalinu. Það kostar of mikið og við skilum of litlu í þjóðarbúið, 23.300 öryrkjar. Þetta er ekkert smáræði og í þeim hópi eru allmargir sem eru fatlaðir og þurfa virkilega á því að halda að þessi samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sé löggiltur. En hverjir eru það sem alltaf eru settir hjá garði? Hverjir eru hunsaðir og fá ekki að taka þátt í „góðærinu“, því það er nú orðin mantra sem fáir trúa á nema þeir sem eru með fulla vasa fjár? Það þarf ekki lengur að tala um góðæri hjá þeim sem eru gjörsamlega miður sín strax eftir fyrstu viku mánaðarins og margir hverjir strax eftir fyrsta útborgunardag mánaðarins þegar búið er að hirða af þeim alla peningana sem þeir fengu, allar fáu krónurnar sem þeir fengu, í húsaleigu eða afborganir af lánum sem eru svo yfirþyrmandi ósanngjörn og ógeðsleg að það tekur ekki nokkru einasta tali. Þetta séríslenska græðgisokurhagkerfi, þetta séríslenska fyrirbæri, á sér hvergi nokkra hliðstæðu á byggðu bóli sem vill kenna sig við siðmenntað samfélag og réttarríki.
Hvernig getur nokkrum dottið það í hug að koma hér upp og tala um nýtt almannatryggingafrumvarp og grobba sig af því þegar því var frestað um átta mánuði að það tæki gildi, frestað um átta mánuði að 10,1 milljarður gæti farið í það að hækka grunnframfærslu öryrkjans þar sem hver og einn öryrki hefði fengið 29.800 kr. meira útborgað á mánuði. Í tekjur, réttara sagt, hátt í 30.000 kr. meira á mánuði í tekjur. En þið, góðu öryrkjar, og fatlaða fólkið, þið megið bíða árum saman eftir samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og getið haldið áfram að bíða eftir réttlætinu. Það eygir ekki neins staðar í það réttlæti, í mínum huga.
Það tók steininn úr í vor sem leið þegar þessi ríkisstjórn, undir velferðarforystu Vinstri grænna, réðst á fatlað fólk með sérstakar stuðningsþarfir, réðst á fatlað fólk á vernduðum vinnustöðum og sagði því upp vinnunni, fyllti það af vanlíðan og kvíða og sendi beinustu leið heim til sín því fæst þeirra eru burðug til þess að fara á almennan vinnumarkað þangað sem á í rauninni að setja þau. Rökstuðningurinn fyrir því að ráðast að þeim, okkar minnstu bræðrum og systrum, með því að svipta þau því öryggi sem þau höfðu haft á sínum vernduðu vinnustöðum voru þessi: En þetta er jú undirbúningurinn að lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, að ráðast svona að fötluðu fólki.
Hverjum dettur það í hug að það sé einn einasti stafur í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks um að það eigi að setja það á almennan vinnumarkað? Samningurinn er túlkaður svo þröngt að það hálfa er nóg. Þessi samningur boðar það að ef þess er nokkur kostur þá á að gefa öllu fötluðu fólki sem treystir sér til og einhver vill fá í vinnu kost á því að fara einmitt á almennan vinnumarkað. En þess sér hvergi stað í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks að það eigi að þvinga allt fatlað fólk út á almennan vinnumarkað, hvort sem það er með sérstakar stuðningsþarfir eða ekki, enda er algerlega vitað að þarna átti að koma með tveggja ára aðlögunartíma og Vinnumálastofnun átti að aðstoða við að koma þessu fatlaða fólki — hugsið ykkur, fólk sem er búið að vera á vernduðum vinnustöðum árum saman — á almenna vinnumarkaðinn. Ríkið ætlar að borga með þeim. Atvinnurekendur fá greitt með því að ráða fólk á vernduðum vinnustöðum á almennan vinnumarkað í einhvern ákveðinn tíma, en hvað verður svo eftir þessi tvö ár? Hvað verður svo eftir þessi tvö ár með einstakling sem nýtur mikillar sérþjónustu og sérþarfir hans eru miklar? Hvað verður um hann þegar það er hætt að greiða með honum til atvinnurekandans? Hvað gerir atvinnurekandinn við hann þá? Kannski hækkar hann við hann launin, eða hvað? Hvað haldið þið? Það þarf enga skarpa hugsun til þess að átta sig á því að það er engin framtíð sem bíður þessa fólks á almennum vinnumarkaði og það er verið að svipta það öllu öryggi og allri vellíðan sem það er búið að byggja upp svo árum skipti? Þetta kalla ég óþverraaðför að fötluðu fólki og að ætla að bera samning Sameinuðu þjóðanna fyrir sig til að réttlæta slíka aðför er enn þá ljótara heldur en það sem áður var talið hér upp.
Núna eiga sem sagt öryrkjar að greiða 10,1 milljarð sem átti að taka gildi núna 1. janúar 2025 í kjarapakka ríkisstjórnarinnar við síðustu kjarasamninga. Þau mega enn bíða eftir réttlætinu. Enn er ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur. Og hér kemur hver silkihúfan á fætur annarri upp í hið æðsta ræðupúlt landsins og segir að hér sé kaupmáttur hvað mestur og bestur og hér hafi allir það að meðaltali alveg rosalega gott. Ég hef skömm á svona málflutningi vitandi það að þau vita það að tugir þúsunda Íslendinga lepja dauðann úr skel, hafa hvorki öryggi með fæði, klæði, húsnæði, ekki neitt.
Það er kominn tími til að þessi stjórnvöld séu látin hverfa og taka pokann sinn. Ég gleðst hvern einasta dag þegar ég sé hvernig fylgið þeirra hrynur linnulaust í skoðanakönnunum og ég ætla bara að vona það í lok dags að þá verði ekki hægt að ljúga einu eða neinu í kjósendur um að það sé betri tíð með blóm í haga fram undan ef við gefum þeim áframhaldandi tækifæri til þess að níðast á samfélaginu eins og við höfum séð gert hér. Þeir sem hafa það gott eru þeir sem eiga alla peningana, eiga allt fjármagnið, hafa fengið að leika sér með líf og framtíð fólks í landinu eins og skopparakringlu. Við erum leiksoppar í Matador-spilinu þeirra, það er það sem við höfum verið í öll þessi ár.
Þetta markaðsgræðgishagkerfi sinnir bara þeim sem elska það, þykir vænt um það og vilja fylgja því eftir. Við höfum séð hvernig hagsmunagæslan hefur verið rekin algerlega grímulaust hér á hinu háa Alþingi. Fórnarlömbin eru þeir sem við ættum helst að taka utan um, þeir sem við þyrftum helst að hjálpa, þeir sem standa höllustum fæti í samfélaginu og okkur ber skylda til að verja og vernda. Það eru þeir sem kusu okkur og treystu okkur til þess að vinna verk okkar af vanda og taka utan um þá sem þurfa á hjálp okkar að halda.
Það er nöturlegt að standa hérna enn og aftur og vera að mæla fyrir frumvarpi um lögleiðingu á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. En ég taldi enga aðra leið færa þrátt fyrir að það væri búið að setja á þingmálaskrá félagsmálaráðherra Vinstri grænna að hann ætlaði að koma hér allt í einu svífandi upp á dekk og lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Ég taldi mér ekki annað fært en að halda áfram að koma hér inn í þingsal með frumvarpið um löggildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks því að hingað til hefur lítið verið að marka þær þingmálaskrár sem við höfum fengið í andlitið á hverju hausti og hafa átt að ná fram að ganga. Nú vitum við öll hvernig ástandið er á stjórnarheimilinu þar sem allt logar stafnanna á milli þannig að ég sé ekki að neitt af þessu nái fram að ganga. En það verður a.m.k. áhugavert og ég er þá a.m.k. búin að koma frumvarpinu um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks til vinnslu í fastanefnd. Það verður a.m.k. komið þangað og hægt að fara að senda eftir umsögnum. Það er þá a.m.k. komið í vinnslu þrátt fyrir að því verði vafalítið fleygt eina ferðina enn í ruslið því það er svo sannarlega langt frá því að hafa verið sýnilegur vilji hér á hinu háa Alþingi til að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, langt frá því.
Það skiptir öllu, öllu máli fyrir fatlað fólk að það geti gengið hér um samfélagið með reisn og að við gerum aðgengi þeirra að samfélaginu okkar eins auðvelt og kostur er. Það er nóg að búa við það böl að vera fatlaður. Það er nóg að þurfa að bera þá byrði að vera vanmáttugur á margan hátt þó svo að samfélagið í heild sinni, ríkisstjórn eftir ríkisstjórn, vísvitandi viðhaldi þeirri vanlíðan sem í raun og veru er hægt að mörgu leyti að koma í veg fyrir. Þetta er grundvallarsamningur fyrir fatlað fólk.
Eitt er víst að ég tala fyrir munn Flokks fólksins og okkar allra hér og allra þeirra sem hugsa líka til fatlaðs fólks með sérstuðningsþarfir og þeirra sem hafa verið á vernduðum vinnustöðum. Hamingjan góða hvað við munum tryggja þeim áframhaldandi öryggi og vellíðan í sinni tilveru ef við getum. Aldrei myndi Flokkur fólksins taka þátt í slíku ofbeldi gagnvart fötluðu fólki sem getur ekki hönd yfir höfuð sér reist, ekki frekar en Flokkur fólksins greiddi aldrei atkvæði með nýju almannatryggingafrumvarpi sem í rauninni byggir eingöngu og mest af öllu á starfsgetumati. Gulrótin var í rauninni kjarabótin fyrir öryrkja sem þeir ákváðu síðan að fresta um níu mánuði. Flokkur fólksins greiðir grænt með öllum kjarabótum en við greiðum ekki atkvæði með starfsgetumati sem er svo illa fram sett og illa ígrundað að það er engin störf til staðar fyrir þá sem verða metnir til starfsgetu. Engin. Þau eru núll. Þau skila auðu. Það á bara að taka nýgengi örorku, þú ert metinn til starfsgetu, 40%, takk fyrir. Frábært, farðu að vinna, 40% vinnu, þ.e. ef einhver vill ráða þig. Þannig verður komið fram við þá sem þurfa að ganga í gegnum nýgengi örorku. Það er skömm að þessari hroðvirkni.
En svona er Ísland í dag og svona eru óhæf stjórnvöld. Svona vinna óhæf stjórnvöld sem láta sér í rauninni nákvæmlega á sama standa, nema bara um suma. Það eru sumir sem fá að njóta gæðanna en ekki allir. Við í Flokki fólksins segjum: Fólkið fyrst, svo allt hitt. Við munum alltaf standa í stafni og verja vígið fyrir þá sem þurfa á hjálp okkar að halda. Alltaf.