samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Virðulegur forseti. Við erum að fjalla hér um frumvarp til laga um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, frumvarp Flokks fólksins, lífsnauðsynlegt frumvarp. Við erum sem sagt að ræða um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Við búum nú þegar í þjóðfélagi þar sem mannréttindi fatlaðs fólks eru langt á eftir öðrum. Þess vegna er nauðsynlegt að drífa þetta mál í gegn og klára það. Þetta á að vera hægt og það eina sem þarf er vilji en ríkisstjórnin vill það ekki. Maður vonaði alltaf að ríkisstjórnin myndi spýta í lófana og klára þetta mál í eitt skipti fyrir öll en sú von er farin. Hvers vegna vill ríkisstjórnin ekki nú þegar og er ekki þegar búin að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem samþykktur var á Alþingi fyrir um þremur árum síðan? Það er ekkert annað en gróft ofbeldi gagnvart fötluðu fólki að draga lappirnar endalaust í þessu lífsnauðsynlega réttindamáli fatlaðra.
En stóra málið er lögfestingin. Það er mál málanna, klárum lögfestinguna þannig að hægt sé að beita þeim lögum, bæði gagnvart stjórnsýslunni og ekki síst fyrir dómstólum, til að verja mannréttindi fatlaðs fólks. Ég var hér í þingsal á sínum tíma og var bjartsýnn fyrir hönd fatlaðs fólks þegar við samþykktum 2019 að fela ríkisstjórninni að lögfesta þennan samning í síðasta lagi 13. desember 2020. Eftir nokkrar vikur verða liðin fjögur ár frá þeim degi þegar átti að vera búið að lögfesta þennan samning. Því miður hefur ríkisstjórnin dregið lappirnar í að lögfesta samninginn og með sama hraða sé ég ekki fram á að henni dugi næsti áratugur ef hún yrði við völd, sem verður sem betur fer ekki. Ég vona að valdatíð hennar sé nú þegar að ljúka vegna þess að það yrði alveg sama hversu langan tíma þessi ríkisstjórn fengi, hún myndi draga lappirnar og ætlar sér ekki að samþykkja þennan samning. Það segir okkur nokkuð um forgangsröðun hennar. Það hefur sýnt sig á Alþingi að ef á þarf að halda að koma einhverjum hlutum í gegn þá er það bara gert einn, tveir og þrír og ekkert mál. En ekki er hægt að gera það í málefnum fatlaðs fólks. Þá eru dregnar lappirnar sem lengst og það gagnvart okkar fólki sem verst hefur það. Þetta gildir líka um lögfestingu frjálsrar bókunar um málefni fatlaðs fólks þar sem eru kæruleiðir og annað til að tryggja réttindi fatlaðs fólks, sem ég hef ítrekað mælt fyrir, en ekkert skeður. Auðvitað vilja þeir ekki gefa fötluðu fólki tækifæri til að kæra óréttlætið gagnvart því.
Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu á sínum tíma með krónu á móti krónu skerðinguna, þegar hún var tekin af öldruðu fólki, að vísa því máli bara frá dómi þegar það var ekki gert fyrir fatlað fólk. Árið 2019 var krónu á móti krónu skerðingin lækkuð í 65 aura á móti krónu. Þetta sýnir auðvitað svart á hvítu þann hugsanagang og þá hugsanavillu sem er hér í þinginu. Það er auðvitað stóralvarlegt mál þegar verið er að skerða 65 aura á móti krónu til fólks sem hefur ekki til hnífs og skeiðar, er í fátækt og jafnvel sárafátækt.
Það verður að segjast alveg eins og er að það er enginn á móti þessum samningi nema ríkisstjórnin. Það er einhver innbyggð tregða hjá ríkisstjórninni að klára málið. Hvers vegna? Hvers vegna hefur hún einhvern veginn tekið þann pól í hæðina að þæfa þetta mál, draga lappirnar og reyna að koma í veg fyrir það? Þetta endurspeglast oft í því þegar maður heyrir umræðuna um fatlað fólk, umræðuna um það að þetta sé kostnaður, að fatlað fólk sé kostnaður, þess vegna sé ekkert hægt að gera. Maður heyrir þetta bæði hjá ríkisstjórninni og sveitarfélögum og þau kasta boltanum á milli sín og kenna hvort öðru um. Í samningnum er ákvæði sem myndi líka þýða bann við allri mismunun. Sérstaklega þurfum við, eins og hefur verið áður sagt, ítrekað, að taka utan um fötluð börn. Við þurfum að hugsa vel um börn, öll börn, en fötluð börn eru í sérstakri áhættu.
Þá er komið aðgengismálum. Aðgengismál fatlaðra eru í ólestri, það er verið að berjast og það eru einstaklingar að reyna að koma þeim í rétta átt en því miður virðist vera ákveðin tregða og þá helst hjá opinberum aðilum, ríki og sveitarfélögum. Það er sorglegt. Það er óásættanlegt að það skuli þurfa t.d. að setja í samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, í 5. gr., frelsi frá pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu. Í 16. gr. er ákvæði um frelsi frá misnotkun í gróðaskyni, ofbeldi og misþyrmingum. Það segir okkur hversu lífsnauðsynlegt er að samþykkja þennan samning til þess að stöðva allt ofbeldi gagnvart fötluðu fólki.
Við höfum orðið vitni að hreppaflutningum fatlaðs fólks, einstaklinga, á hjúkrunarheimili fyrir aldraða. Það ber auðvitað að stöðva, það er okkur til háborinnar skammar, en til þess þarf samning Sameinuðu þjóðanna. Svoleiðis ofbeldismál væri ekki hægt að framkvæma ef það væri búið að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna gagnvart fötluðu fólki. Það væri heldur ekki hægt að troða ofan í kok á fötluðum einstaklingum á örorku starfsgetumati sem þeim er ekki þóknanlegt.
Það verður að sjá til þess að húsnæðismál fatlaðra einstaklinga verði mannsæmandi. Það er hægt að gera kröfu um að þegar búið verður að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um málefni fatlaðs fólks verði þetta í lagi. Að lifa sjálfstæðu lífi án aðgreiningar í samfélaginu, á það ekki að vera sjálfsagður hlutur? Virðing fyrir heimili og fjölskyldu, menntun, tjáningar- og skoðanafrelsi, aðgangur að upplýsingum, heilbrigði, hæfing og endurhæfing, vinna og störf, þetta sýnir okkur svart á hvítu að við þurfum að taka á þessum málum og við þurfum að gera það strax á stundinni. Fatlaðir Íslendingar geta ekki beðið lengur. Þess vegna fagna ég þessu frumvarpi og vona heitt og innilega að það verði samþykkt, að ríkisstjórnin hysji upp um sig og taki sig til og lögfesti samninginn, en því miður er borin von um það. Þetta er lítil krafa en risastórt skref fyrir þau sem þurfa að reiða sig á að samningurinn verði lögfestur þannig að þau geti fengið að verja sig og geti þar af leiðandi gert kröfur um að fá að lifa mannsæmandi lífi eins og við öll hin.
Virðulegur forseti. Það er mikilvægt að við skulum vera að mæla fyrir þessu frumvarpi fyrir alla þá sem eiga við fötlun að stríða. Á sama tíma eru gríðarleg vonbrigði að ekki skuli vera löngu búið að lögfesta þennan samning. Við vitum að ofbeldi gagnvart fötluðu fólki er ljótur blettur á íslensku samfélagi. Lögfesting samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks mun hindra ofbeldið og þá sérstaklega það ofbeldi sem fatlaðar konur og jafnvel börn hafa orðið fyrir. Alþjóðlegar rannsóknir sýna að fatlaðar konur eru mun líklegri en aðrar konur til að vera beittar ofbeldi. Þrátt fyrir að um sé að ræða alvarleg mannréttindabrot er ofbeldi gagnvart fötluðum konum enn falið og ósýnilegt og sjaldan brugðist við því af hálfu stjórnvalda. Með lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um málefni fatlaðs fólks yrði hægt að bregðast við þessu. Hér á landi hafa stjórnvöld brugðist við þessu með því að nýta tækifærið og þróa vefgátt. Við verðum að hindra ofbeldi og sjá til þess að það verði gert með lögum. Íslenskar sem erlendar rannsóknir leiða í ljós að fatlað fólk er sérstakur áhættuhópur sem þolendur ofbeldis.
Ég tek heils hugar undir þetta frumvarp. Ég verð að segja eins og er að það að við skulum vera hér í dag, fjórum árum eftir að búið var að samþykkja þetta, að reyna að fá þetta samþykkt — ég hvet ráðherra til að bretta upp ermarnar en því miður, það er of seint. Þeir ætla sér ekki að gera þetta. Til að stöðva þetta er ein leið. Það er hreinlega að ríkisstjórnin fari frá völdum en því miður er það ekki líklegt. Í því samhengi verðum við að átta okkur á að fátækt meðal þessa hóps, fatlaðs fólks, er viðvarandi. Það sama gildir um fátækar konur í þessum hópi og fátækt fólk almennt, sennilega er það verra að því leyti til, eins og rannsóknir hafa sýnt, að það fólk sem lifir við ævarandi fátækt lifir skemur og týnir með því einum tug ára, oft vegna þess að það fær ekki þá einföldu þjónustu sem það á rétt á. Kannanir sýna einnig að meiri líkur eru á að fatlað fólk verði fyrir ofbeldi eins og áður hefur komið fram, einkum ungar konur. Erlendar rannsóknir sýna að börn sem glíma við þroskahömlun eru 4,6 sinnum líklegri en ófötluð börn til að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi. Þess vegna ber okkur að samþykkja samning Sameinuðu þjóðanna um málefni fatlaðs fólks. Fötlun er í eðli sínu hluti mannlegs lífs og enginn veit hver verður næst fyrir tímabundinni eða varanlegri fötlun á lífsleiðinni. Fatlað fólk á Íslandi á rétt á því að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verði lögfestur og það strax og einnig viðaukinn. Þetta ber að gera en því miður, ríkisstjórnin ætlar ekki að gera það.
Það er ótrúlegt að við skulum þurfa að mæla ítrekað fyrir þessu frumvarpi. Við vitum að það var samþykkt hér í vor nýtt frumvarp um almannatryggingar og málefni öryrkja, starfsgetumat. Margir sem samþykktu það frumvarp komu núna með eftiráskýringar og tala t.d. um það sem er verið að taka upp aftur, víxlverkun lífeyrissjóðs. Það sýnir bara svart á hvítu að það var rétt hjá Flokki fólksins að standa gegn þessu frumvarpi. Þetta er bara eitt af mörgum dæmum sem sýna það. Til dæmis er það alveg með ólíkindum að í því frumvarpi er gert ráð fyrir að einn ákveðinn hópur einstaklinga, sem eru öryrkjar, fái 308 kr. hækkun. Á sama tíma er talað um stórkostlega hækkun fyrir alla öryrkja í þessu frumvarpi. 308 kr. er ekki stórkostleg hækkun og skýringin á því að viðkomandi eigi að fá svona lítið var að þeir hafi það svo rosalega gott. Ég veit ekki um neinn sem hefur það rosalega gott í þessu kerfi. Það er alveg á hreinu að það að setja þannig hlutina frá sér að einhver hafi það gott í þessu kerfi getur bara komið frá þeim aðilum sem hafa aldrei þurft að lifa í þessu kerfi. Ég hef lifað í þessu kerfi. Ég veit nákvæmlega hvernig þetta kerfi virkar — eða virkar ekki. Þetta er bútasaumaður óskapnaður, almannatryggingakerfið, fjandsamlegt kerfi sem virðist vera byggt upp orðið eingöngu sem refsikerfi frekar en bótakerfi. Enn þann dag í dag er kerfið þannig að fólk er ekki upplýst um það hvaða réttindi það á. Það þarf að finna út sjálft sín réttindi sem sýnir nákvæmlega hversu fáránlegt þetta kerfi er. Meira að segja fólk sem lifir í kerfinu má ekki einu sinni ávaxta fé sitt. Jú, það fær frítekjumark upp á 100.000 kr. á ári en eftir það er það skattað um 22% og skert um 45% á sama tíma og auðmenn sem eingöngu lifa á fjármagnstekjum þurfa bara að borga 22% skatt og eru ekki skertir á neinn hátt og ekki settur aukaskattur á þá.
Þetta sýnir svart á hvítu að þetta kerfi er ekki byggt upp sem mannúðarkerfi. Þetta er bara byggt upp sem refsikerfi. Því miður, eins og hefur komið líka, sem var samþykkt, á að taka 10,1 milljarð af því sem átti að fara í þetta örorkukerfi og fresta því um nokkra mánuði, taka 50.000 kr. á mánuði af þessu fólki sem þarf helst á því að halda sem myndi skila því nærri þrjátíu og eitthvað þúsund krónum eftir skatta. Það er líka skýrt boð um fjárhagslegt ofbeldi sem viðgengst. Það að það sé í lagi að þetta eigi að koma í haust og þá koma inn líka þessar 308 kr. fyrir ákveðinn hóp, þá kemur líka inn ýmislegt annað sem vantaði inn í starfsgetumatskerfið — en því miður verður bara að segjast alveg eins og er að það var tekið út í engri sátt og illa unnið, því miður. En vonandi getum við samþykkt þetta mál, að samningur Sameinuðu þjóðanna um málefni fatlaðs fólks verði samþykktur. En því miður reikna ég ekki með því.