viðhlítandi þjónusta vegna vímuefnavanda.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um viðhlítandi þjónustu vegna vímuefnavanda en stuðningur við tillöguna er þverpólitískur. Meðflutningsmenn eru hv. þingmenn Bryndís Haraldsdóttir, Hildur Sverrisdóttir, Ásmundur Friðriksson, Njáll Trausti Friðbertsson, Vilhjálmur Árnason, Birgir Þórarinsson, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, Oddný G. Harðardóttir, Dagbjört Hákonardóttir, Sigmar Guðmundsson, Bergþór Ólason og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Þetta mun vera í fjórða skipti sem ég mæli fyrir þessu mikilvæga máli en það hefur ekki náð fram að ganga í meðförum þingsins. Fíknisjúkdómar eru lífshættulegir og ljóst er að bið eftir heilbrigðisþjónustu getur verið dauðadómur. Meðan sjúklingarnir bíða eftir að fá viðeigandi þjónustu er gífurlegt álag á aðstandendur þeirra og fjölskyldur með tilheyrandi afleiðingum og kostnaði fyrir samfélagið. Þess vegna leggja flutningsmenn til að hæstv. heilbrigðisráðherra láti greina þá hópa sem ekki fá viðhlítandi þjónustu vegna vímuefnavanda. Nauðsynlegt er að hópar vímuefnasjúklinga verði skilgreindir svo hægt sé að gera tillögur að úrræðum sem henta hverjum hópi. Fíknisjúkdómar eru bráðasta hættan sem steðjar að ungu fólki á Íslandi í dag. Tugir ungmenna látast á ári hverju af völdum of stórs skammts af fíkniefnum. Í greinargerð með tillögunni er rifjuð upp átakanleg frásögn ungs manns með vímuefnavanda og móður hans. Mæðginin kölluðu eftir fleiri og breyttum meðferðarúrræðum og bentu á að biðlistarnir væru ekkert annað en dauðalistar, sem þeir eru. Við aðstandendur þekkjum því miður allt of vel að fylgja eftir þeim sem bíða á þessum svokölluðu dauðalistum og ef þeir týna ekki lífinu þá gera vinir þeirra það.
Virðulegi forseti. Bent hefur verið á að vinnan sem flutningsmenn leggja til að ráðist sé í fari vel samhliða heildarúttekt á heilbrigðisþjónustu við einstaklinga með vímuefnasjúkdóma sem fer nú fram á vegum hæstv. heilbrigðisráðherra. Sú vinna hefur verið í gangi um árabil og m.a. gerði erlendur sérfræðingur úttekt á íslenskum úrræðum í síðasta mánuði. Eftir því sem ég kemst næst hyggst hæstv. ráðherra greina frá niðurstöðum þeirrar vinnu sem þegar hefur verið unnin núna á næstunni. Áhyggjur okkar flutningsmanna snúa að því að ólíkir hópar vímuefnasjúklinga verði örugglega í forgrunni og hefur sú sem hér stendur komið þeim áhyggjum á framfæri. Hæstv. ráðherra hefur sannarlega ráðist í fjölda mikilvægra aðgerða til að vinna á þessum hryllilega vanda sem samfélagið okkar stendur frammi fyrir, því að auðvitað er bráðavandi sem steðjar að ungmennum vandi alls samfélagsins, en þær aðgerðir, m.a. viðbótarsamningur um flýtiþjónustu vegna fíknisjúkdóma og fjöldi skaðaminnkandi aðgerða, m.a. varðandi neyslurými og aðgengi að nefúða, eru bara plástrar á kerfi sem ekki er til nægjanlega góð heildarsýn yfir. Og á meðan starfshópar rýna í tölur og ráðherrar svara fyrirspurnum og skýrslum eru biðlistar eftir meðferðarúrræðum vegna vímuefnavanda langir og neyðin er mikil. Á þessum biðlistum deyja allt of margir, allt of snemma. Ég vísa hér reglulega í minningarsíður Morgunblaðsins sem stafa þessa stöðu út fyrir okkur. Við vitum að akkúrat nú á þessum tímapunkti bíða hundruð sjúklinga eftir að komast í meðferð á sjúkrahúsinu Vogi.
Ljóst er að fólki sem glímir við fíknisjúkdóma er í dag ekki tryggð nauðsynleg heilbrigðisþjónusta þegar hundruð sjúklinga bíða eftir viðhlítandi úrræðum. Það er í mikilli mótsögn við þá mikilvægu viðhorfsbreytingu sem hefur orðið í samfélaginu í þá átt að fíknisjúkdómar eigi að vera meðhöndlaðir sem slíkir innan heilbrigðiskerfisins. Það er mat flutningsmanna að það ætti að vera algjört forgangsmál hjá stjórnvöldum að efla og auka skilvirkar forvarnir, fræðslu og meðferðarúrræði, enda eru forvarnir og meðhöndlun fíknisjúkdóma besta leiðin til að draga úr vímuefnavandanum.
Virðulegi forseti. Það er kominn tími á viðhlítandi þjónustu vegna vímuefnavanda. Að lokum vonast ég til að heyra gagnlegar ábendingar og athugasemdir við málið og ræða það við hv. þingmann og legg til að málið gangi að lokinni 1. umræðu til hv. velferðarnefndar.