155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

viðhlítandi þjónusta vegna vímuefnavanda.

43. mál
[18:22]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Jú, jú, maður hefur gjarnan heyrt það hér að orð séu til alls fyrst, að við eigum samtalið og orð og orð og orð. En orð og gjörðir eru allt annað og vilji er allt annað en verk. Hvað raunverulega hefur staðið í vegi fyrir þessu? Við vitum t.d. að sjúkrahúsið Vogur hefur getað tekið við fleirum og er alltaf með laus innlagnarrými. Í sumar og vor voru laus innlagnarrými en það skorti mannskap til að sinna fólkinu. Þeir höfðu svigrúm til að taka á móti fleirum og hjálpa fleirum. Talsmenn SÁÁ hafa ítrekað sagt að þau gætu í rauninni tekið á móti mun fleirum ef þau fengju stuðning og bolmagn til þess. Við vitum að þetta eru okkar mestu sérfræðingar á sviði fíknisjúkdóma sem við eigum, þeir sem starfa á sjúkrahúsinu Vogi. Þar er reynslan mest og best. Þannig að það er ekki bara þetta.

Hvað það varðar að við í Flokki fólksins séum ekki á þessari tillögu þá skal ég algerlega viðurkenna að einhverra hluta vegna fór hún fram hjá mér. En þetta hefur ætíð verið mitt hjartans mál og ég hef talað verulega háum rómi úr þessum æðsta ræðustóli landsins í varnarbaráttu fyrir þetta fólk og kallað eftir hjálp fyrir þá sem eru að glíma við fíknivandann, ásamt t.d. hv. þm. Sigmari Guðmundssyni í Viðreisn. Við höfum verið algerlega óbilandi í því að hrópa á hjálp fyrir þetta fólk og reyna að leggja það fyrir þingið hvernig raunveruleg staða er hjá þessum hópi sem glímir við þennan hræðilega fíknivanda. Ég segi aftur: Vá, hv. þingmaður er að leggja þetta fram í fjórða sinn og enn erum við bara að tala saman. Þrátt fyrir að eitthvað hafi verið gert þá verðum við að viðurkenna að vandinn er að vaxa, ekki að minnka, og biðlistinn er að lengjast, ekki að styttast. (Forseti hringir.) Vandinn bara vex og nú eru 400 einstaklingar á götunni í Reykjavík, 400 einstaklingar og stærsti hlutinn af þeim er einmitt þessi hópur sem glímir við fíknivanda.

(Forseti (ÁsF): Ég minni hv. þingmann á að ræðutíminn er takmarkaður.)