155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

viðhlítandi þjónusta vegna vímuefnavanda.

43. mál
[18:24]
Horfa

Flm. (Diljá Mist Einarsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni síðara andsvar. Ég heyri að hv. þingmaður er orðin leið á því sem hún kannski skynjar að sé fyrst og fremst orðagjálfur í þingsal eða frá ráðamönnum. Til þess að gæta allrar sanngirni, af því að ég held að við hv. þingmaður höfum verið mjög samhljóma í okkar málflutningi og baráttu í þessum málaflokki, þá hefur verið gripið til fjölmargra aðgerða. Ég fór yfir nokkrar aðgerðir í framsögu minni áðan. Fjármagn hefur sannarlega verið aukið, bæði til SÁÁ og Krýsuvíkursamtakanna, og ýmislegt hefur verið vel gert. Ég tel hins vegar að framtíðarlausnin felist ekki í því að dæla bara meiri og meiri fjármunum inn í þau úrræði sem þegar eru til staðar því að ég tel að það séu bara plástrar á kerfi sem sannarlega er ekki fullkomið. Við aðstandendur, þegar við tölum um fólk sem hefur farið inn í þetta kerfi sem er til staðar og hefur virkað vel fyrir suma en ekki hlotið þar viðhlítandi þjónustu af því að það hefur ekki passað inn í viðkomandi módel eða viðkomandi stofnanir, köllum eftir því að það fari fram greining á þessum sjúklingahópum og þeim sé mætt með viðeigandi úrræðum. Ég sannarlega get tekið undir með hv. þingmanni varðandi fjársvelti ýmissa stofnana. Við því hefur verið brugðist af hæstv. ráðherra í einhverjum tilvikum, en við verðum að fá betri heildarsýn yfir málið.