155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

viðhlítandi þjónusta vegna vímuefnavanda.

43. mál
[18:26]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir að leggja þetta mál fram. Eins og kom fram hjá henni er ég einn meðflutningsmanna á þessu máli. Ég styð það auðvitað eindregið. Enda hef ég, eins og fleiri þingmenn, oftsinnis vakið máls á því hvað það er í raun og veru mikilvægt fyrir andlega heilsu samfélagsins og líka fjárhagslega heilsu ríkissjóðs og sveitarfélaga að stíga svolítið vel niður fæti og reyna að veita því fólki sem þjáist af þessum sjúkdómi fjölbreyttari og betri úrræði.

Í þessu máli finnst mér verið að snerta á ákveðnum kjarna sem skiptir gríðarlega miklu máli og við þurfum að velta fyrir okkur. Þetta eru svo margir mismunandi hópar að við verðum einhvern veginn að fá einhvers konar kortlagningu á því hvernig þeir líta út og hvers konar úrræði eða meðferðir gætu hentað hverjum og einum hóp. Nú er það þannig að þessir hópar eru mjög misjafnir. Við getum t.d. tekið sem dæmi að ungir neytendur, sem eru kannski um þrítugt, búnir að vera alla sína ævi í afbrotum og harki, hörðum fíkniefnum og annað, en hafa kannski varla smakkað áfengi á lífsleiðinni — maður getur alveg velt því fyrir sér hvort það sama eigi við um þann hóp og t.d. eldra fólk sem kemur inn á Vog, mögulega búið að vera að drekka vín mjög lengi og sér til skaða augljóslega. Er einhver samlegð með þessum hópum í meðferð t.d., bara svo að ég nefni það sem dæmi? Bakgrunnur fólks getur verið svo óskaplega misjafn.

Það er síðan annað sem skiptir líka miklu máli í þessu, þ.e. að sami einstaklingurinn, sem getur mögulega oftar en einu sinni og oftar en tvisvar og jafnvel oft á lífsleiðinni þurft á aðstoð að halda; hans viðhorf til þess sem er að það er ekkert endilega það sama á milli ára. Menn eru mismóttækilegir fyrir aðstoðinni og eitthvað sem þeir eru tilbúnir til þess að láta reyna á á tilteknum tíma er ekkert endilega það sama og þeir vilja sjá einhvern tímann síðar. Þá getum við auðvitað sagt: Ja, fólk verður bara að taka þá meðferð eða þau úrræði sem í boði eru. Ég vil frekar hugsa þetta þannig að úrræðin þurfi að vera fjölbreyttari til þess að við getum mætt fólki þar sem það er, út frá þeim sjúkdómi sem það er með. Þetta er nefnilega svo ótrúlega flókinn sjúkdómur, miklu flóknari en margir aðrir. Svo er það nú líka einfaldlega þannig að sumir einstaklingar sem leita sér aðstoðar, og eru jafnvel búnir að vera ár eða áratugi í neyslu, hafa aldrei verið virkir þátttakendur í samfélaginu. Hversu margir eru þessir einstaklingar? Hvers konar úrræði henta þeim best? Þetta eru kannski einstaklingar sem eru algerlega búnir að missa trú á því að fara inn í þessi hefðbundnu úrræði sem við þekkjum, inn á Vog eða Krýsuvík eða inn á Hlaðgerðarkot, svo að dæmi sé tekið, jafnvel búið að fara þangað í tugi skipta. Eigum við að ýta þessu fólki enn frekar út á jaðarinn og segja: Heyrðu, nei, það er ekkert frekar fyrir þig? Eða eigum við að velta því fyrir okkur hvort það geti verið heppilegt að koma upp sérstöku úrræði fyrir hóp sem er nákvæmlega þarna staddur, sem yrði þá sérsniðið að þeim vanda sem þetta tiltekna fólk glímir við og líka bara því hæfnistigi og þeirri getu sem þetta fólk býr yfir til að taka þátt í samfélaginu. Sumt fólk sem er með fíknisjúkdóm þarf í raun og veru á meira en inniliggjandi meðferð í mánuð eða tvo eða þrjá að halda. Það gæti hreinlega þurft á að halda endurhæfingu mánuðum saman og jafnvel enn lengur, einhvers konar úrræði sem getur kallað á mikil inngrip eða mikla meðferð með sálfræðingum, geðlæknum eða öðrum sem geta lagt lóð á vogarskálarnar þegar kemur að endurhæfingu. Þetta er bara svo flókið og birtingarmynd þessa sjúkdóms er svo margvísleg að úrræðin verða að vera fjölbreytt.

Ég er hins vegar mjög harður á þeirri skoðun minni að við erum auðvitað búin að byggja upp ansi mikla þekkingu á þessum sjúkdómi sem liggur víða í þeim úrræðum sem eru til staðar, til að mynda inni á spítala hjá SÁÁ, í Hlaðgerðarkoti, Krýsuvík og allt þetta. Þetta allt saman megum við ekki veikja. Þarna liggur þekking og hana eigum við að halda í og hana eigum við að efla og jafnvel að byggja frekar undir þessi úrræði. En við megum ekki láta ofurtrú okkar á þeim úrræðum sem þegar eru starfrækt koma í veg fyrir að við leitum kannski einhverra nýstárlegra leiða til þess að þjónusta hópa sem einhverra hluta vegna, mögulega á einhverjum tilteknum tíma á lífsleiðinni, geta ekki hugsað sér að sækja sér aðstoð á þessum stöðum. Það er svolítið svona heila málið.

Nú erum við auðvitað líka svolítið mikið að tala um alls konar skaðaminnkandi úrræði sem við sjáum spretta upp hér og þar í samfélaginu. Mig langar að halda því til haga hér og nú. Og oft er það nú þannig að þessi úrræði eiga rót sína í því að hið opinbera, annaðhvort sveitarfélögin eða ríkið, hefur vanrækt einhverja skyldu sína og þá taka t.d. einhver félagasamtök eða samtök einstaklinga það upp hjá sjálfum sér að reyna að fylla upp í það gat. Við sjáum að þetta er nokkuð algengt og áberandi í úrræðum þegar kemur að skaðaminnkun. Það má alveg færa rök fyrir því að við eigum að hlúa að því eins og við getum. En auðvitað er það þannig að allt meðferðarstarf eða allt starf þar sem fólk með fíknisjúkdóma er undir er í sjálfu sér skaðaminnkun. Það á að vera útgangspunkturinn í allri okkar hugsun, þegar kemur að þessum málaflokki, að við erum að reyna að minnka skaðann.

Ég tek stundum dæmi af tveimur einstaklingum þegar maður er að velta þessum málum fyrir sér; segjum tveir ungir einstaklingar sem þess vegna alast upp í sama hverfi. Annar er með fíknisjúkdóm en hinn ekki. Þessi sem ekki er með fíknisjúkdóm fer í nám, klárar sinn skóla, háskólanám, fer út á vinnumarkað, stofnar jafnvel fyrirtæki, greiðir alla tíð skatta og skyldur til samfélagsins, heldur utan um fjölskylduna sína, heldur utan um börnin sín og lætur gott af sér leiða í víðum skilningi þess orðs. Hinn einstaklingurinn klárar mögulega ekki skóla, nær ekki að festa rætur á vinnumarkaði, er í neyslu, þarf jafnvel að fjármagna neyslu með afbrotum, er jafnvel inn og út af meðferðarheimilum, fer jafnvel inn í fangelsi, þarf jafnvel að leita á náðir kerfa á borð við atvinnuleysiskerfin okkar eða jafnvel inn í örorkuna — kostnaðurinn sem hlýst af þessum einstaklingi, ef við viljum hugsa þetta í krónum og aurum, miðað við tekjurnar sem eru þá af hinum einstaklingnum sem ég var að lýsa; þarna á milli er algjört ginnungagap. Þarna erum við ekki að tala um einhverja tugi milljóna í muninum á framlagi hvors einstaklings fyrir sig til samfélagsins heldur miklu stærri fjárhæðir. Þess vegna þyrftum við auðvitað að vera með fjölbreytt úrræði til að grípa þennan einstakling sem ég talaði um í seinna dæminu til að minnka þann kostnað sem fellur til og lendir á samfélaginu. Ég hef reynt að líta á það að þegar við erum að horfa á aukin útgjöld, eins og stundum er þegar við erum að tala hér úr þessum ræðustól, í þennan málaflokk þá erum við samt sem áður líka að afstýra því að kostnaður falli til hér og þar um samfélagið einhvers staðar annars staðar. Það getur verið beinn kostnaður ríkisins. Það getur verið beinn kostnaður sveitarfélaganna. Það getur líka verið beinn kostnaður atvinnulífsins í formi t.d. tapaðra vinnustunda eða einhvers þess háttar. Það getur verið beinn kostnaður þeirra sem eru á einhvern hátt þolendur þeirra sem t.d. fjármagna neyslu sína með afbrotum. Þetta teygir sig einhvern veginn og hríslast út um allt samfélagið.

Mér finnst dálítið mikið atriði að við höfum þetta allt saman í huga þegar við erum að fjalla um þessi mál og ekki síst þingsályktunartillöguna sem hér er undir því að, eins og ég nefndi í upphafi, grunnhugsunin á bak við hana er að fá betri yfirsýn yfir það hvaða hópar þetta eru sem þjást af þessum sjúkdómi og hvaða hópar það eru sem fá þá ekki viðhlítandi þjónustu. Það er auðvitað þannig að við eigum öll rétt á því að fá heilbrigðisþjónustu þegar við erum veik en einhver svona greiningarvinna, þar sem við tæklum þetta kannski svolítið betur út frá hópum og reynum jafnvel að þjappa þeim betur saman til að átta okkur betur á umfangi vandans; ég held að það sé af hinu góða.

Ég ætla síðan að nota tækifærið og fagna því, eins og kom fram hjá hv. flutningsmanni, Diljá Mist Einarsdóttur, að sums staðar erum við að bæta í. Við sjáum t.d. að heilbrigðisráðherra og Sjúkratryggingar voru að semja við SÁÁ þar sem verið er að auka í og efla ópíóíðameðferðina og það nokkuð duglega. Þetta er það sem ég hef talað fyrir héðan úr þessum ræðustól mjög lengi. Ég fagna því mjög að þetta sé gert. Það er auðvitað verið að gera fleira. Það koma stundum aukafjárveitingar til þeirra aðila sem eru að sinna meðferðarstarfi og ég vil nú meina að flest allt sem hér er gert, sem snýr að þessum málaflokki, sé mjög gott. En það er bara ekki nándar nærri nóg. Þess vegna vil ég fagna því að þessi þingsályktunartillaga sé komin fram þótt ég taki nú reyndar undir þá hugsun, sem kom fram í andsvari hjá hv. þm. Ingu Sæland, að maður er ekkert sérstaklega vongóður um að þetta nái í gegn í ljósi þess að þetta er þingmannamál en ekki stjórnarmál.