155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

tekjuskattur.

47. mál
[18:44]
Horfa

Flm. (Diljá Mist Einarsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér í fyrsta sinn fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, um hækkun skattleysisaldurs. Meðflutningsmenn á málinu eru Sjálfstæðismennirnir og hv. þingmenn Birgir Þórarinsson, Hildur Sverrisdóttir, Ásmundur Friðriksson, Jón Gunnarsson, Njáll Trausti Friðbertsson, Vilhjálmur Árnason, Berglind Ósk Guðmundsdóttir og Teitur Björn Einarsson. Frumvarpið er stutt og laggott og markmiðið er skýrt, sem sagt að börn óháð aldri greiði ekki tekjuskatt að fullu heldur í samræmi við tekjuskatt af tekjum barna. Þannig verði fullur tekjuskattur bundinn við sjálfræði eða við 18 ára aldur. Í dag miðast þessi aldur við 16 ár.

Rökin fyrir þessu eru nokkur. Fyrst má nefna að réttindi 16 og 17 ára til vinnu eru takmörkuð með reglugerð og þykir flutningsmönnum því m.a. vegna þess ekki rétt að skattleggja ungmenni með sama hætti og sjálfráða einstaklinga. Öllu mikilvægara er þó sú staðreynd að þegar einstaklingar verða sjálfráða við 18 ára aldur þá fá þeir líka kosningarrétt og þannig fá þeir tækifæri til að hafa áhrif á þær ákvarðanir sem eru teknar um stefnu ríkisins, m.a. í skattamálum. Við þetta er að bæta að áhrif vegna þess á ríkissjóð yrðu óveruleg þar sem fæst börn á aldrinum 16 og 17 ára vinna meira en sem nemur skattleysismörkum.

Hugmyndin að þessu þingmáli fæddist reyndar eftir heimsókn ungmenna hingað til mín á Alþingi. Þau spurðu fjölmargra góðra spurninga og m.a.: Af hverju þurfum við að borga skatta en megum svo ekki kjósa? Við höfum sannarlega bundið kosningarrétt við þann aldur og þar með tækifæri til að hafa áhrif á þær ákvarðanir sem eru teknar, m.a. í skattamálum. Þessi breytingartillaga okkar flutningsmanna fellur því betur að því, eða eins og sagt er: Engin skattlagning án áhrifa.

Að lokum vonast ég til að heyra gagnlegar ábendingar og athugasemdir við málið, hvort sem er hér í þingsal eða við vinnu í nefndinni. Ég legg til að málið gangi að lokinni 1. umræðu til hv. efnahags- og viðskiptanefndar.