sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki.
Herra forseti. Já, hér mæli ég fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sérstakan skatt á fjármálafyrirtæki, nr. 155/2010, hækkun bankaskatts. Með mér á þessu frumvarpi er sem sagt gjörvallur þingflokkur Flokks fólksins.
1. gr. orðist svo að í stað 0,145% í 4. gr. laganna kemur: 0,838%.
2. gr. Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi: Gjaldhlutfall 4. gr. skal endurskoðað þegar vextir húsnæðislána fara undir 5%.
Í 3. gr. segir sem svo að lögin öðlist gildi 1. janúar 2025.
Í greinargerð með frumvarpinu segir m.a. að það hafi verið lagt fram á 154. löggjafarþingi, 378. mál, en ekki náð fram að ganga og sé nú lagt fram að nýju óbreytt.
Í frumvarpi þessu er lagt til að hækka gjaldhlutfall sérstaks skatts á fjármálafyrirtæki, svonefnds bankaskatts, í 0,838%. Miðað við fjárlög ársins 2024 myndi aðgerðin auka tekjur ríkissjóðs um rúma 30 milljarða kr. á ársgrundvelli. Forsögu þessa skatts má rekja til hrunsins, efnahagshrunsins árið 2008, en með frumvarpi til laga um sérstakan skatt á fjármálafyrirtæki var leitast við að hvetja fjármálafyrirtækin til að fjármagna sig með öruggari hætti, þ.e. að vera með hátt eigið fé og tryggð innlán.
Allt frá upphafi árs 2014 hélst gjaldhlutfallið óbreytt en með lögum nr. 131/2019 var ákveðið að lækka bankaskattinn úr 0,376% í 0,145% af þáverandi hæstv. fjármálaráðherra, Bjarna Benediktssyni. Vert er að taka fram að auk þess voru sett ákvæði til bráðabirgða um hærri bankaskatt á árunum 2020, 2021 og 2022, en gjaldhlutfallið átti þá að vera 0,318%, 0,261% og 0,203% á þessum þremur árum. Þessi bráðabirgðaákvæði voru þó felld niður í apríl 2020 þannig að það þótti liggja á að lækka bankaskattinn niður í þessi 0,145%. Hefur bankaskatturinn því verið það síðan. Ástæða þessarar lækkunar á bankaskattinn — þetta er allt svo athyglisvert og skemmtilegt — var sögð vera til að auðvelda bönkunum að lækka vexti á útlánum. Lækka vexti á útlánum. Auðvelda bönkunum. Ég endurtek: Auðvelda bönkunum. Bankaskatturinn var lækkaður til þess að auðvelda bönkunum að lækka útlánin sín samhliða vaxtalækkunum Seðlabanka Íslands og auka útlán þeirra.
Ég hef nú ýmislegt um þetta að segja. Eðli málsins samkvæmt þá get ég ekki séð það vaxtaokur sem lagt er á íslenskan lánþega, heimili og lítil og meðalstór fyrirtæki og aðra, ég get ekki túlkað það sem neitt annað en okur. Það hlýtur að vera með hreinum ólíkindum, og þetta er alveg séríslenskt græðgishagkerfi sem við erum að horfa upp á hérna, að einstaklingur með 45 millj. kr. lán skuli greiða inn á lánið sitt á mánuði innan við 10.000 kr. en vel yfir 400.000 á mánuði í vexti. Hvurs lags eignaupptaka er þetta? Það er búið að leggja hreinar og klárar lagnir, risastórar sugur frá öllum sem skulda þannig að þeir sjúga úr manni hvern einasta blóðdropa ef maður skuldar þeim krónu, í boði þessarar ríkisstjórnar. Hvað rugl er það að við skulum ekki eiga að fá eitthvað af kökunni? Ég bara krefst þess að bankarnir skili til samfélagsins einhverju af því arðráni sem við höfum orðið að þola hérna upp á síðkastið.
Stóru íslensku bankarnir hafa árum saman kallað eftir lækkun á þessum bankaskatti, árum saman, og sagt að með þeirri lækkun myndi vaxtamunur heildareigna, þ.e. hlutfall hreinna vaxtatekna af heildareignum bankanna, dragast saman. Meðal annars hefði þetta átti að leiða til ódýrari lána til heimila og fyrirtækja.
Ég veit eiginlega ekki hvaða nöfnum er verið að nefna þetta, en við sjáum öll að við lifum í einhverjum sýndarveruleika þegar við erum að tala um bankakerfið hérna. Þetta er einhver sýndarveruleiki. Það er alveg með ólíkindum hvernig við getum horft upp á þetta dag eftir dag og alveg með ólíkindum að stjórnvöld skuli ekki löngu vera búin að grípa inn í þetta ófremdarástand og setja þak, bara hreinlega þak á þessa okurvaxtastarfsemi sem við erum að horfa upp á. Og nú ætla ég bara að tala um þetta eins og þetta er, bara algjörlega eins og það er: Hér koma einstaklingar og eru hvattir til þess að fjárfesta. Það var búið að byggja upp framtíðarlágvaxtaumhverfi. Það var alveg sama þó að ég og hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson, á sínum tíma þegar Covid-faraldurinn var hér og hét, byrjuðum að ræða og beina óundirbúnum fyrirspurnum til þáverandi hæstv. fjármálaráðherra, Bjarna Benediktssonar, og þáverandi hæstv. forsætisráðherra, Katrínar Jakobsdóttur, um það hvað ætti að gera þegar það virtist vera allur jarðvegur fyrir verðbólgu. Hvort þau ætluðu ekki að reyna að grípa inn í. Hvað ríkisstjórnin ætlaði að gera til að tryggja heimilin í landinu, til að setja belti og axlabönd á heimilin í landinu til að verja okkur enn einu áfallinu. Það var í rauninni brosað góðlátlega að mér þarna og okkur Guðmundi Inga Kristinssyni. Við vorum nú greinilega algjörlega í bullinu því að það var ekkert sem benti til þess hjá þessum hæstv. ráðherrum að það væri einhver verðbólga handan við hornið eins og við vorum að gefa í skyn. Það var eiginlega litið á mann eins og hálfgerða völvu sem vissi varla hvað hún væri að segja. En staðreyndin var sú að hvert einasta orð sem ég hef talað á þessum æðsta ræðustóli landsins á þessum tíma hefur gengið eftir, hvert einasta orð sem ég talaði, hvert einasta varnaðarorð og hvernig við hefðum getað gripið inn í fyrir fjórum, fimm árum síðan. Þetta hefur allt gengið eftir. En það var ekkert gert til að grípa inn í. Það var ekkert gert til að verja heimilin. Það var ekkert gert til að verja lítil og stór fyrirtæki, meðalstór fyrirtæki, fyrir þessu hrikalega áfalli.
Þetta eru ólýsanlegt ástand, gjörsamlega ólýsanlegt. Ég hefði aldrei trúað því að ég ætti sjálf eftir að vera hv. alþingismaður og standa hér og skilja hvorki upp né niður í því hvernig nokkur ríkisstjórn getur horft upp á þetta einu sinni og einu sinni enn. (Gripið fram í: Heyr, heyr. ) Það er eins og það sé orðið í áskrift að reglulega, á tíu ára fresti, 15 ára fresti, eigi samfélagið að ganga í gegnum holskeflu af græðgi og sjálftöku fyrirtækja, auðvaldsins og bankaelítunnar. Þetta er svívirðilegt. Þetta er svívirða gagnvart samfélaginu, svívirða. Þúsundir, þúsundir og aftur þúsundir eru að lepja dauðann úr skel og ná ekki endum saman. En hvað er þá gert? Hvað var nú gert þegar æ, æ, æ, það kom óvart verðbólga og hún varð eiginlega allt of, allt of öflug og hún varð eiginlega allt of há og hún varði eiginlega allt of lengi? Þetta var þannig að Seðlabankinn í sínu sjálfstæði festist í stýrivaxtahækkunum og hefur nú verið að dunda við það síðustu fjögur árin, smám saman, að hækka stýrivexti. Þegar hann var svo búinn að ná 9,25% festist hann einhvern veginn í handbremsunni þar og við fengum að þola þessi 9,25% í rúmt ár þangað til að stýrivextirnir voru lækkaðir í mýflugumynd um daginn, um 0,25%.
En hver er rótin að öllu þessu? Hver er rótin að öllu þessu? Seðlabankastjóri benti sjálfur á það í Sprengisandi á sunnudaginn. Hann sagði einfaldlega, þó að hann ætlaði kannski ekki alveg að vera að tjá sig um það sérstaklega, að það lægi alfarið fyrir að sú þéttingarstefna sem hefur verið rekin í Reykjavíkurborg í gegnum tíðina og sú skortstefna að ekki skyldi hafa verið brotið hér niður land til uppbyggingar sé í rauninni algerlega rótin að langvarandi og viðvarandi verðbólgu og viðvarandi stýrivaxtabremsugangi Seðlabankans í þessum 9,25% — sáu ekki fram á það af því að við erum að glíma við húsnæðisskort. Við erum að glíma við raunverulegan húsnæðisskort og við erum að glíma við það núna að það eru 400 einstaklingar á götunni í Reykjavík. Af hverju er ekki byggt yfir þetta fólk? Af hverju fær það ekki þak yfir höfuðið? Af hverju eigum við ekki annað JL-hús til að innrétta fyrir þau? Er ekki nóg til? Getum við ekki bjargað heiminum? Eigum við ekki að gera allt fyrir alla nema þá sem eru að reyna að koma sér þaki yfir höfuðið og skulda bönkunum eða lánastofnunum einhverjar krónur? Síðan erum við pínd í það að leita nýrra úrræða. Æ, æ, æ, eru þessir föstu breytilegu vextir algjörlega að sliga ykkur, elskulegu skuldarar? Æ, æ, æ, er nú snjóflóðið lent á ykkur þannig að í stað þess að borga 200.000 á mánuði þá þarftu að fara að borga 420.000 á mánuði? Og þú, greyið mitt, sem ert með allt of lágar tekjur bara missir algerlega húsnæðið nema þú leitir annarra leiða hjá bankanum þínum. Talaðu við bankann þinn. Reyndu að fá hann til að gera eitthvað fyrir þig. Og hvað var það aftur? Verðtrygging. Farðu í verðtrygginguna. Farðu í verðtryggingu, þú ert búinn að græða svo á þessu hræðilega ófremdarástandi sem ríkir hér á húsnæðismarkaði að það er gott fyrir þig. Sæktu í verðtrygginguna og þá lækka afborganirnar þínar um tíma og við skulum smám saman hirða af þér eignarhlutann sem þú ert búinn að vera að berjast fyrir að eignast í gegnum tíðina.
Þvílíkt og annað eins ofbeldiskerfi er í rauninni ekki hægt að finna á byggðu bóli í einhverju sem kallast lýðræðis- og réttarríki. Það er bara ekki hægt. Við sláum heimsmet í þessu eins og öllu öðru en ég kæri mig bara ekkert um það að slá heimsmet að þessu leyti, bara engan veginn. Þannig að ég ætla að tala hér um að það — það vill náttúrlega enginn vera með okkur, rétt eins og í fyrra. Við buðum ekki einu sinni neinum að vera með okkur á þessu máli núna. Við buðum öllum að vera með okkur á málunum okkar í fyrra. En nei, það var bara: Við erum að hækka bankaskattinn allt of mikið. Æ, æ, æ, þeir græða ekki nema einhverja 100 milljarða á ári. Og þeir eru að græða meira, hækkuðu núna einmitt vextina á verðtryggðu lánunum þegar þeir eru búnir að ná til sín eiginlega öllum markaðnum af þeim sem vildu halda eignunum sínum, þvinguðu þá til þess að fara í verðtryggingu og nú er verið að hækka verðtrygginguna. Bæði á verðtryggðum breytilegum vöxtum og verðtryggðum föstum vöxtum var verið að hækka á dögunum um 12–16%. Motus gaf það út nákvæmlega líka að alvarlegar skuldir heimilanna hefðu vaxið um 20,1% frá áramótum.
En þessi ríkisstjórn, hvað segir hún aftur? Hver er staðan? Heyrðu, hér drýpur smjör af hverju strái. Hér hafa það allir svo frábærlega gott. Hvernig dettur nokkrum í hug að standa hér og segja við fátækt fólk og þá sem eru að berjast fyrir tilveru sinni: Hættu þessu bulli, þú hefur það víst gott, OECD sagði það. Þú hefur það víst gott. Maður er gjörsamlega búinn að fá upp í kok af þessum málflutningi. Það er þetta sem er þess valdandi, svona málflutningur er þess valdandi að það er verið að snúa blinda auganu að raunverulegum verkefnum sem þessi ríkisstjórn á að vera að vinna í.
Við í Flokki fólksins vildum kalla eftir því að þessi ríkisstjórn kæmi saman í sumar sem leið til að takast á við það neyðarástand sem hefur skapast og er viðvarandi í samfélaginu í dag, viðvarandi. Það er bara brotabrot af þeim sem lentu í þessu snjóflóði okurvaxtaviðbjóðs sem mögulega geta mokað sig upp. Enn og aftur eigum við eftir að sjá, alveg eins og hagsmunafulltrúi skuldara hefur sagt, að það er í rauninni mikil ásókn og mikil aukning fjölskyldna, einstaklinga og fjölskyldna að leita á náðir umboðsmanns skuldara vegna þess að þau eru gjörsamlega að bugast undan byrðinni sem þessi ríkisstjórn hefur lagt á þau. Það þarf enginn að ráðast endalaust á Seðlabankann eða bankana eða hvaðeina annað sem er. Þetta er mannanna verk. Allt sem við erum að ganga í gegnum er í boði þessarar ríkisstjórnar. Við sjáum það samanlagt í 5% í skoðanakönnun fyrir næstu kosningar. Hún á ekkert betra skilið. Þetta er mannanna verk og þetta er í boði þessarar ríkisstjórnar. Þið skuluð ekki gleyma því. Þannig að þessir bankar eru meira en aflögufærir. Svo mikið er alveg víst.
Hvítbók um framtíð fjármálakerfisins kom út árið 2018 og það má geta þess að meðalvaxtamunur íslenskra banka var 2,7% árið 2022 en hjá öðrum norrænum bönkum af svipaðri stærð var hann 1,6%. En okkar bankar þurfa alltaf að græða meira. Það er alltaf að koma aukin ávöxtunarkrafa. Þá ætlum við að einkavæða meira og meira og nú er það nýjasta að selja Íslandsbanka. Gullgæsirnar eru teknar og höggvin af þeim höfuðið og þau sett á grillið. Allt sem við eigum, íslenskur almenningur, og skapar okkur auð, framtíð og öryggi er slegið af í þessu kapítalíska brjálæðislega, hvað á ég að segja, markaðshagkerfi sem hér er rekið. Þeir vilja einkavæða allt. Allt, það er alveg sama hvað það er.
Við í Flokki fólksins viljum samfélagsbanka. Við viljum að Landsbankinn verði alltaf okkar eign. Við viljum fá samfélagsbanka, við viljum fá alvörusamkeppni inn á bankamarkaðinn. En fyrst og síðast þá krefjumst við þess að bankarnir og fjármálafyrirtækin skili inn í okkar sameiginlegu sjóði 30 milljörðum á ári þangað til þeir hafa komið íbúðalánunum okkar undir 5% í vexti. Komið lánunum okkar niður fyrir 5% og þá skulum við skoða það að lækka bankaskattinn. En fram að þeim tíma ættuð þið að skammast ykkar.