sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki.
Virðulegur forseti. Samanlagður hagnaður bankanna á síðasta ári og því sem af er þessu ári er 120,2 milljarðar. Athugum að hér er um hagnað að ræða, ekki veltu heldur hagnað eftir að allur launakostnaður, húsnæðiskostnaður, skattar, risna og hvaðeina sem rekstur banka felur í sér, hefur verið greiddur. 120 milljarðar er fáránlega há tala í hagnað sem hefur hækkað á undanförnum árum og stafar ekki síst af því að verið er að veita fjármuni heimilanna til fjármálastofnana í bílförmum. Fyrst og fyrst og fremst er nauðsynlegt að við áttum okkur á því að þetta fé verður ekki til úr engu. Miðað við að landsmenn séu 387.000 þá eru þetta 310.000 á hvert einasta mannsbarn á Íslandi eða um 1,2 milljónir á hverja fjögurra manna fjölskyldu. Miðað við 150.000 fjölskyldur eru þetta um 800.000 kr. á fjölskyldu.
Svo má ræða hreinar vaxtatekjur bankanna frá 2021 sem eru heilir 462 milljarðar sem koma beint úr vösum heimilanna, þeirra sem mest skulda og minnst eiga. Að meðaltali gera það um 3 milljónir frá hverju einasta heimili landsins. En þessir fjármunir dreifast samt ekki jafnt á öll heimili. Sum sleppa ansi vel á meðan önnur hafa fengið byrðarnar á sig af fullum þunga. Þar má nefna sem dæmi fólk sem hefur horft á afborganir lánsins hækka úr 230.000 kr. í 475.000 kr., eða um meira en 100% frá því í apríl 2022. Það heimili hefur greitt 5,7 milljónir í vexti eða nær tvöfalt meðaltalið, sem miðast við þrjú ár, á tveimur árum. Gríðarlegur hagnaður bankanna er tekinn af okkur fólkinu, heimilunum og fyrirtækjunum í landinu. Þetta eru fjármunir sem einstaklinga og fyrirtæki myndi virkilega muna um. Þessi hagnaður bankanna varð ekki til af því að bankamenn eru svo klárir í fjárfestingum, þvert á móti því að dæmin um snilli þeirra eru bara alls ekki mörg. Þessar tölur sýna einfaldlega fram á aðstöðumun milli bankanna og almennings og skjaldborgina sem reist hefur verið í kringum þá. Þessar tölur sýna fram á að litið er á okkur, fólkið í landinu, sem einhvers konar fóður eða auðlind sem bankarnir geta gengið í að vild. Og undir þessari ríkisstjórn hafa átt sér stað einhverjir mestu fjármagnsflutningar sem um getur án þess að hún hafi lyft litla fingri til að verja heimilin og fjármögnun þeirra. Að vísu hafa þessir fjármagnsflutningar átt sér stað í þeim göfuga tilgangi að verja þessi sömu heimili fyrir afleiðingum verðbólgu. En það er nú önnur saga sem ekki verður farið nánar í hér að öðru leyti en því að benda á að í þessu tilfelli helgar tilgangurinn ekki meðalið og maður læknar ekki böl með því að gera annað verra.
Fjármunir bankanna koma frá heimilunum, fólkinu í landinu, með beinum og óbeinum hætti. Heimilin eru undirstaða þjóðfélagsins, ekki bankarnir heldur heimilin, því að án þeirra væru engin fyrirtæki og engin verðmætasköpun, hvað þá einhver fjárfesting. Vaxtastig bankanna er augljóslega óþarflega hátt og það getur ekki talist eðlilegt að ef svo fer sem fram horfir þá jafngildir hagnaður bankanna því að hver einasti einstaklingur í 387.000 manna þjóðfélagi hafi lagt 310.000 kr. í púkkið. Það er ansi margt sem fjögurra manna fjölskylda gæti gert og myndi örugglega vilja gera fyrir þessar 1,2 milljónir frekar en að leggja þessa stóru upphæð í þegar yfirfullar fjárhirslur bankanna.
Það er kominn tími til að ríkisstjórnin fari að forgangsraða þannig að heimilin og fólkið sé sett ofar fjármagni. Það væri algerlega stórkostlegt, þó að það sé því miður fjarlægð draumsýn, ef ríkisstjórnin myndi stöðva óheftan aðgang bankanna að auðlindinni sem er heimilin í landinu, þar mætti setja kvóta, eða léti fjármálastofnanir a.m.k. greiða bankaskatt upp á 0,838% — 0,838%, svo að hægt væri að nýta þetta fé til samfélagslegra verkefna. Athugið að þessi bankaskattur, 0,838%, sem er frekar óþjál tala að segja, hún nær ekki einu sinni 1% en myndi samt auka tekjur ríkissjóðs um 30 milljarða. Það jafngildir t.d. 12 varnargörðum á Reykjanesi, sem ríkisstjórnin sá ástæðu til að skattleggja heimilin sérstaklega fyrir. Þá stóð ekki á henni að skattleggja heimilin. Og 30 milljarðar er meira en það sem við leggjum í nýsköpun og næstum því það sama og við áætlum í lyfjakostnað á næsta ári, svo að einhver dæmi séu nefnd. Við þurfum þessa peninga.
Það má ekki heldur gleyma því að bankarnir eru stærstu kennitöluflakkarar landsins. Þeim var bjargað úr gjaldþroti með því að ríkið gaf þeim nýja kennitölu og leyfði þeim að halda áfram rekstri án þess að nokkuð annað sem skiptir máli breyttist. Það er líka staðreynd að bankarnir hafa margfaldað álagningu sína síðustu ár, svo mikið að það nemur mörghundruð prósentum.
Þrátt fyrir lækkun bankaskatts fyrir nokkrum árum hafa lægri vextir og lægri fjármögnunarkostnaður bankanna að mestu farið í vasa þeirra sjálfra. Auðvelt er að álykta sem svo að bankarnir hafi tekið til sín mestan ávinning vaxtahækkana síðustu ára. En þrátt fyrir að bankarnir hafi stöðugt aukið álagningu og hirt ávinning af lækkun bankaskatts er fólkinu á gólfinu fækkað, útibúum lokað og þjónustan stórlega skert. Til að bæta gráu ofan á svart reisti banki allra landsmanna nýjar höfuðstöðvar í mikilli óþökk þjóðarinnar á dýrasta byggingarreit landsins, sannkallaðan minnisvarða um samfélagsmein. Herlegheitin kostuðu aðeins litlar 16.500 milljónir og til að hjálpa aumingja bankanum, sem hefði getað reist höfuðstöðvar sínar fyrir innan við 5 milljarða, bara ekki í miðbæ Reykjavíkur, keypti ríkið hluta húsnæðisins fyrir 6 milljarða. Já, það er svo gott þegar hjálp og fjármagn ríkisins fer þangað sem þess er mest þörf. Forgangsröðun ríkisstjórnarinnar er skýr.
En af hverju er svona gríðarleg tregða gagnvart því að láta bankana greiða innan við 1% bankaskatt? Það má leiða líkur að því að staðan væri betri í fjársveltum grunnstoðum samfélagsins, eins og í heilbrigðismálum og menntakerfinu, svo ekki sé minnst á aðbúnað aldraðra, svo örfá dæmi séu tekin, ef bankarnir væru að greiða aðeins meira til samfélagsins, t.d. það sem þessi 0,838% nema.
Að þessu sögðu er náttúrlega ekki sjálfgefið í eðlilegum bankarekstri að hagnaður bankanna sé þetta mikill. Ástandið hér á landi er í hæsta máta óeðlilegt og þessir fjármunir eiga með réttu að vera í höndum heimila og fyrirtækja fólksins í landinu. En ótti og meðvirkni stjórnvalda með bönkunum er með ólíkindum. Með vaxtaokrinu undanfarin misseri er verið að veita fjármuni heimila og fyrirtækja til bankanna í stríðum straumum. Að auki hafa þeir hagnast gríðarlega allt frá því að stærsta kennitöluflakk sögunnar átti sér stað og enn eru þeir að fá meira. En þrátt fyrir það virðast þeir alltaf vera algerlega stikkfríir þegar kemur að því að leggja eitthvað til samfélagsins. Þeir taka bara.
Árið 2019 var smánarlega lágur bankaskattur upp á 0,36% lækkaður í 0,145%. Með öllum þessum aukastöfum er ekki víst að allir átti sig á að bankaskatturinn var minna en 0,4% en er núna minna en 0,15%.
Í greinargerð með frumvarpinu um lækkun bankaskatts árið 2019 stóð, með leyfi forseta:
„Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er m.a. lögð áhersla á að unnið verði að frekari skilvirkni í fjármálakerfinu með það að leiðarljósi að lækka kostnað neytenda.“
Ég ætla ekki að tjá mig um skilvirkni í fjármálakerfinu en hitt er ljóst að kostnaður neytenda hefur ekki lækkað þrátt fyrir að bankaskatturinn hafi verið lækkaður. Það þarf virkilega brengluð gleraugu til að halda því fram að það markmið hafi náðst.
Á minnisblaði sem efnahags- og viðskiptanefnd fékk frá fjármálaráðuneytinu var svar við spurningu þar sem ég bað um að reiknað væri út hversu miklar tekjur ríkissjóður myndi fá ef bankaskattur yrði aftur hækkaður úr 0,145% í 0,376%, sem er það sem hann var fyrir breytinguna í Covid. Í svarinu kom fram að væri skattprósenta 0,145% mætti gera ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs af sérstökum skatti á fjármálastofnanir eða bankaskatti myndu nema 6,5 milljörðum kr. En væri skattprósentan hækkuð úr 0,145% í 0,376% mætti gera ráð fyrir að tekjur af skattinum árið 2024, að öllu óbreyttu, myndu nema 16,8 milljörðum kr. Við erum að fá 6,5 milljarða en gætum með þeirri hækkun, bara í það sem hann var áður, fengið 16,8 milljarða í ríkissjóð. Þarna munar litlum 10,3 milljörðum. En fjármálaráðuneytið lét í svari sínu ekki þar við sitja heldur taldi sig einnig þurfa að útskýra fyrir hv. efnahags- og viðskiptanefnd að sennilega myndi þetta ekki alveg virka svona. Í svarinu stóð, með leyfi forseta:
„Hér er um einfaldan útreikning að ræða miðað við óbreyttan skattstofn. Áhrif slíkrar skattahækkunar eru þó margslungnari en svo og því líklega um ofmat að ræða. Skattbyrðin leggst ekki að öllu leyti á greiðendur skattsins heldur viðskiptavini þeirra einnig. Auknar álögur á fjármálastofnanir stuðla að auknum vaxtamun og minni útlánavexti sem hefur áhrif á fleiri skattstofna, þar með taldar ráðstöfunartekjur lántakenda. Þar að auki leggst skatturinn á skuldir stofnananna og dregur því úr hvata þeirra til að stækka efnahagsreikning sinn og auka útlán. Erfitt er að meta afleidd áhrif slíkrar skattahækkunar á aðra skattstofna nema að því leyti að þau yrðu neikvæð fyrir tekjur ríkissjóðs og vega því að einhverju leyti gegn tekjuauka af hækkun bankaskattsins sjálfs.“
Já, þetta eru skemmtilegar og óneitanlega merkilegar pælingar hjá fjármálaráðuneytinu því að í svari sínu leitast það við að finna allar þær ásakanir sem til eru fyrir því að hækka ekki bankaskattinum. Það þykir mér merkilegt af tveimur ástæðum; í fyrsta lagi vegna þess að þetta sýnir fram á tök bankanna á fjármálakerfinu og hvernig æðstu stjórnvöld bugta sig og beygja fyrir valdi þeirra. Meðvirknin er algjör. Staðreyndin er sú að bankarnir eru aflögufærir. Þeir eiga fullar hirslur fjár og ættu frekar en flestir aðrir sem skattlagðir eru án slíkra hugleiðinga um langtímaáhrif að leggja meira til samfélagsins. Og ef þessum rökum fjármálaráðuneytisins væri fylgt þá mætti velta fyrir sér hvort við ættum að skattleggja nokkuð, vegna þess að ég held að öll fyrirtæki velti með einum eða öðrum hætti skatttekjum eða skattlagningu út til neytenda.
Í öðru lagi er vægast sagt sjaldgæft að fjármálaráðuneytið tjái pólitíska afstöðu með þessum hætti og taki fram hvort heldur kosti eða meinbugi á tillögum sem fram koma. En enginn, ekki einn einasti flokkur eða stjórnmálamaður sem setið hefur í ríkisstjórn, hefur haft döngun í sér til að takast á við bankana og því hefur engin breyting orðið á undanförnum árum. Allir hafa þeir varið rétt bankanna til að féfletta heimili og minni fyrirtæki, fólkið í landinu, og nú blasa afleiðingarnar við. Þegar fjármunir sem þessir hverfa út úr samfélaginu og inn í lokaða hít þá hefur það keðjuverkandi áhrif á allt samfélagið. Einstaklingar sem hafa lifað við stanslausar fjárhagsáhyggjur myndu ekki vera að upplifa sömu pressu og þeir upplifa núna. Og nú eru margir að missa móðinn sem gæti endað með veikindaleyfi því að langvarandi fjárhagsáhyggjur eru meðal algengustu ástæðna t.d. kulnunar. Ríkisstjórninni allri finnst að einkavæða eigi sem mest af hagnaði bankanna í stað þess að beina honum inn í samfélagið. Hjá þeim er samstaða um að þessi gríðarlegi hagnaður sé best kominn inni í hítinni fyrir örfáa útvalda að njóta. Jú, við þurfum kerfi utan um fjármál okkar, launareikninga, millifærslur, kortaviðskipti, lán og fleira þess háttar. En hver er raunkostnaðurinn við það allt? Hvernig getur það staðist að þessi þjónusta, sem í eðli sínu er ekkert annað en bókhald og að færa tölur á milli dálka, sé jafn frek til fjörsins og raun ber vitni? Við í Flokki fólksins höfum ítrekað mælt fyrir bankaskatti þó að þar til nýlega hafi tillögur okkar bara snúist um að koma honum í það sem hann var fyrir lækkun, 0,376%. En núna teljum við ástæðu til að ganga lengra. Það er löngu kominn tími til að bankarnir séu ekki eins og heilagar og ósnertanlegar kýr sem enginn má koma við og engar skyldur bera.
Og hver er eiginlega samfélagsleg ábyrgð og eigendastefna stjórnvalda sem eiga enn einn og hálfan banka? Er virkilega til of mikils mælst að bankarnir og eigendur þeirra gefi þau fyrirmæli að vegna stöðunnar, sem hjá mörgum er skelfileg, sé nauðsynlegt að þeir ýti til hliðar arðsemissjónarmiðum og dusti rykið af samfélagslegu ábyrgðinni og taki þannig þátt í að hlífa viðskiptavinum sínum og samfélaginu við hugmyndafræði sem mergsýgur það? Hagnaður bankanna á heima í vösum fólksins í landinu en þeir oftaka af þeim. Ef heimili og fyrirtæki hefðu þessa fjármuni í sínum höndum (Forseti hringir.) myndi það skila sér til baka til ríkisins með ýmsum hætti auk þess að létta lífsbaráttu okkar allra. Við í Flokki fólksins segjum: (Forseti hringir.) Hingað og ekki lengra. Fólkið fyrst, svo allt hitt. (Forseti hringir.) Almenningur er ekki fóður fyrir bankana. Bankana fyrir fólkið en ekki fólkið fyrir bankana. (IngS: Heyr, heyr.)