155. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2024.

Störf þingsins.

[13:31]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. Þegar friðarsamkomulagið, kennt við Ósló, var gert árið 1993 á milli Ísraelsríkis og PLO var tveggja ríkja lausnin lögð til grundvallar. Öfgaöfl bókstafstrúaðra gyðinga Ísraela hafa barist gegn því samkomulagi frá upphafi. Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, er einn þeirra sem hefur barist gegn þessu samkomulagi í meira en þrjá áratugi. Itamar Ben-Gvir, núverandi þjóðaröryggisráðherra Ísraels, hefur barist gegn þessu samkomulagi af öllum mætti frá því að hann var unglingur og dansaði beinlínis á gröf Yitzhaks Rabins forsætisráðherra, sem var ráðinn af dögum af öfgasinnuðum gyðingi árið 1995. Það var hefnd fyrir Óslóarsamkomulagið. Ben-Gvir lét reisa tilræðismanninum minnismerki.

Hvers vegna er ég að tala um þetta, frú forseti? Vegna þess að þessar staðreyndir eru grundvöllur þess að skilja ástandið sem ríkir núna í Palestínu. Að skilja ástandið sem ríkt hefur í meira en 18 ár á Gaza-ströndinni undir stjórn Hamas og þær eru lykillinn að því að skilja stríð Ísraelsstjórnar bæði á Gaza og í Líbanon nú um stundir. Hezbollah er skilgetið afkvæmi fyrstu innrásar Ísraels í Líbanon og auðvitað hinn fullkomni leppur fyrir klerkaveldið í Íran. Ríkisstjórn Netanyahus væri löngu fallin ef öfgaflokkarnir á Ísraelsþingi styddu hana ekki. Netanyahu er búinn að vera um leið og stríðinu lýkur. Hans bíða ákærur vegna spillingarmála fyrir dómstólum og Ísraelsþjóð er klofin. Helmingur hennar hefur fram að innrásinni 7. október á síðasta ári verið í mótmælum vegna áforma um að grafa undan réttarríkinu í Ísrael. Stríðinu á Gaza, á Vesturbakkanum og í Líbanon mun ekki ljúka fyrr en aðalstuðningsmenn Ísraelsríkis, Bandaríkjamenn og aðrir þeir sem selja þeim vopn, hætta því. Því þarf að ljúka svo að friður geti komist á. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)