Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Myndin Ljósvíkingar er eitt af meistaraverkum íslenskrar kvikmyndagerðar og ég hvet fólk til að sjá myndina. Þetta segi ég ekki bara vegna þess að í fyrsta sinn á Íslandi og þótt víðar væri leitað er trans kona í aðalhlutverki. Arna Magnea Danks sýnir okkur inn í heim þeirra sem eru öðruvísi í samfélagi sem rígheldur í úrelt gildi og kemur í veg fyrir að manneskjur geti blómstrað.
Það sem skiptir ekki minna máli er að í myndinni er sagður sannleikurinn um stöðu bátaarfsins okkar. Vernd og varðveisla skipa og báta er hluti af alþýðumenningu og atvinnusögu Íslendinga. Um er að ræða ómetanleg menningarverðmæti úr sjávarútvegi og sjósókn Íslendinga frá landnámi og allt fram á 20. öld en á meðan menningararfur íslensku þjóðarinnar grotnar niður í fjörum landsins er hjákátlegt að kalla okkur menningarþjóð. Ég hef lagt fram tillögu til þingsályktunar um fjármögnun varðveislu, björgunar og endurgerðar skipa- og bátaarfsins.
Virðulegi forseti. Íslensk kvikmyndagerð er á heimsmælikvarða. Hún skilar fjölda starfa, styrkir íslenska tungu og lyftir okkar samfélagi og menningu. Það er óboðlegt að þessir tveir málaflokkar sem ég hef hér fjallað um skuli verða svo alvarlega fyrir beittum hnífi aðhalds í fjárlögunum og bæði Kvikmyndasjóður og fornminjasjóður muni berjast í bökkum ef af verður. Við verðum að standa með íslenskri menningu og sögu.