Störf þingsins.
Frú forseti. Þannig bar nú við í gær að ég var hér í óundirbúnum fyrirspurnatíma við hæstv. fjármálaráðherra, Sigurð Inga Jóhannsson, þar sem ég var að inna hann eftir svörum við því hvort honum þætti eðlilegt að öryrkjar skyldu vera látnir greiða fyrir kjarapakka ríkisstjórnarinnar með því að launagreiðslur til þeirra myndu ekki ná fram að ganga. Ég mismælti mig og sagði þetta væru rétt um 30.000 kr. en þetta er mun hærri upphæð, þetta eru rétt um 50.000 kr. á mánuði sem er verið að taka af öryrkjunum í átta mánuði.
Ég kom með dæmisögu af móðurinni, dæmisögu sem er sönn og ég upplifði sjálf. Þá bregður svo einkennilega við að þegar ég nefni að hún sé einstæð tveggja barna móðir norður í landi og annar drengurinn, eldri drengurinn, biður hana að gefa sér 1.200 kr. í sund þá má segja að í síðara andsvari ráðherrans — sem ég gat ekki svarað því að þannig er þetta kerfi nú byggt upp að hvort sem maður á í sérstökum umræðum við þessa ráðherra eða ekki þá eiga þeir alltaf síðasta orðið, nema í þetta skipti ætla ég að fá að eiga það hér undir þessum lið, störf þingsins. Hæstv. fjármálaráðherra kom hér upp og brigslaði mér um það að ég væri að bulla þegar ég talaði um að það kostaði 1.200 kr. í sund og hann sagði að það kostaði 300 kr. í sund í Þelamörk. Hann gerði sem sagt ráð fyrir því að þessi einstæða móðir væri með tvö börn á grunnskólaaldri. Hann var ekkert að velta því fyrir sér í raun og veru hvað drengurinn væri gamall. Hann er sem sagt ekki á grunnskólaaldri og það kostar 1.200 kr. fyrir hann í sund í Þelamörk og það geta allir kynnt sér sem fara inn á heimasíðuna eins og ég býst við að hæstv. fjármálaráðherra hafi einmitt verið að gera á milli svara við mig í óundirbúnum fyrirspurnatíma í gær. Og niðurstaðan er þessi: Alveg sama froðan og flæðir hér venjulega hér út úr þessum hæstv. ráðherrum; bull og vitleysa, órökstutt og aftur bull.