155. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2024.

Störf þingsins.

[13:41]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Frú forseti. Mig langar aðeins til að biðja ykkur um að ímynda ykkur hvernig það er að sinna verkefnum daglegs lífs án þess að heyra almennilega, hvernig það er að sinna þannig börnunum ykkar, mökum, foreldrum. Setjum okkur í spor þeirra sem daglega ganga til vinnu við þessar aðstæður. Hvernig haldið þið að sé að sinna tómstundum og félagsstarfi? Það væri gott ef sem flest okkar settum okkur í þessi spor. Þetta er nefnilega staða rúmlega 2.000 manns sem nú eru á biðlista eftir heyrnarþjónustu frá Heyrnar- og talmeinastöð Íslands. Fullorðnir bíða þar að meðaltali í um tvö ár. Börn þurfa ekki að þola meira en sirka sjö mánuði að meðaltali. Þetta eru tölur frá Heyrnar- og talmeinastöð frá því í mars síðastliðnum og þær hafa ekki lagast. Þetta var staðan þegar fjárlög næsta árs voru unnin í sumar, og hvað gerðist svo þar? Jú, útgjöld til málaflokksins eru áætluð um 549 millj. kr. Fjárlögin gera ráð fyrir 231 milljón í tekjur. Gatið er upp á 318 milljónir sem stjórnvöld ætla Heyrnar- og talmeinastöð að afla sér með sértekjum á sama tíma og vitað er að lög og reglugerðir sem stöðin þarf að fylgja kveða á um að við núverandi aðstæður og mannafla geti stofnunin ekki gert þetta. Þetta er pattstaða og meðan á pattstöðunni stendur þá safnast á biðlista.

Þetta er glórulaus staða og áhrifanna gætir víðar. Stofnunin hefur þurft að leggja niður 18 mánaða eftirlit barna sem grunur leikur á að séu með málþroskaröskun. Foreldrar og forráðamenn barna geta ekki lengur leitað þangað vegna gruns um seinkaðan málþroska eða einhvers konar tjáskiptavanda fyrir börn á öllum aldri. Þetta er staðan á Íslandi í dag. Heyrnar- og talmeinastöð Íslands á samkvæmt lögum að huga að heyrnarheilsu og sérhæfðri talmeinaþjónustu heillar þjóðar og við sem hér erum eigum að sjá sóma okkar í því að búa svo um hnútana að hún geti uppfyllt lögin okkur í hag.