Störf þingsins.
Frú forseti. Ríkisstjórn Íslands hangir saman á hræðslunni við kjósendur, hræðslunni við að mæta örlögum sínum í kosningum eftir að hafa brugðist umbjóðendum sínum og misst alla bolta, eftir að hafa grafið undan verðmætasköpun í landinu, grafið undan innviðum, haldið innviðauppbyggingu í gíslingu um allt land, eftir að hafa misst stjórn á efnahagsmálunum og kallað verðbólgu og vaxtahækkanir yfir fólk og fyrirtæki, vaxtahækkanir sem eru ígildi tugmilljarða skattahækkana á heimili og fyrirtæki. Það er ekkert sem réttlætir það hvernig haldið hefur verið á málum hér á síðustu árum. Nú er samstarf þessara þriggja flokka orðið að slíkri trúðasýningu og í slíkum henglum að það er eiginlega rangnefni að kalla þetta ríkisstjórn. Það er verið að sóa tíma og orku í stjórnkerfinu og hér á Alþingi í tóma vitleysu. Það sjást varla stjórnarmál hér inni og flest stóru málin eru fyrir fram dauð samkvæmt yfirlýsingum ráðherranna sjálfra. Stjórnarþingmenn dauðskammast sín fyrir forgangsröðun ríkisstjórnarinnar og tala þess vegna eins og þeir séu í stjórnarandstöðu en samt ætla þau að hanga saman, a.m.k. fram yfir 25. janúar þegar flokkarnir taka við ríkisstyrkjum upp á mörg hundruð milljónir. Þau ætla að leggja enn einn veturinn á þjóðina, enn einn veturinn þar sem tiltekt í ríkisrekstrinum er slegið á frest, enn einn veturinn þar sem ekki er tekið á brýnum verkefnum í velferðarmálum, samgöngumálum, löggæslumálum, orkumálum, þar sem þröngir sérhagsmunir þriggja þreytulegra stjórnmálaflokka eru teknir fram yfir hagsmuni þjóðar. Það sem Ísland þarf núna er ný forysta, ný stefna og ný ríkisstjórn sem nær stjórn á efnahagsmálunum, vinnur að aukinni verðmætasköpun og fjárfestingu í landinu og hefst handa við að styrkja aftur velferðarkerfið um allt land.