Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Að skynja hjartsláttinn í kjördæminu sínu er hverjum þingmanni nauðsynlegt. Þess vegna eru kjördæmavikur svo bráðnauðsynlegar. Hagsmunir svæðanna eru hins vegar að mörgu leyti ólíkir, en þó ekki þegar horft er til þeirrar grunnþjónustu sem sveitarfélögin eru að veita og þurfa að veita. Endalaust reiptog á milli ríkis og sveitarfélaga er því miður þekkt í öllum sveitarfélögum. Í strjálli byggð þurfa sveitarfélög m.a. að sinna skólaakstri og gera það af miklum myndarskap en slíkur akstur er oft á tíðum á holóttum malarvegum sem eru á forræði ríkisins. Samgöngubætur eru því ofarlega á forgangslista sveitarstjórnarfólks á Suðurlandi. Önnur umræða átti sér hins vegar stað á Suðurnesjum sem er eðlilegt í ljósi þeirra eldsumbrota sem þar hafa geisað. Að hitta fyrirtækjaeigendur í Grindavík var áhrifamikið og staðfesti enn og aftur það sem við í Viðreisn höfum ítrekað bent á, að ekki sé nóg að gert í þeirra málefnum. Nú hefur verið skipuð svokölluð Grindavíkurnefnd og henni ætlað að gera úrbætur á svæðinu til að auka öryggi en einnig að koma með tillögur til framtíðar. Ekki er hægt að segja annað en að hljóðið hafi verið þungt í fundarmönnum sem telja sig ekki hafa fengið úrlausn sinna mála ellefu mánuðum eftir rýmingu. Fyrirtækjaeigendur hafa lagt fram þrjár tillögur sem bætt geta stöðu þeirra, en þær eru að styðja fyrirtæki sem vilja vera áfram í Grindavík, að greiða flutningsstyrki fyrir fyrirtæki sem flutt geta tímabundið og síðan uppkaup á þeirra húsnæði eins og gert hefur verið á íbúðarhúsnæði í gegnum Þórkötlu.
Virðulegur forseti. Það er bráðnauðsynlegt að Grindavíkurnefndin geri þessar tillögur fyrirtækjaeiganda að sínum. Staða þeirra er orðin mjög slæm og alveg ljóst að tíminn er að hlaupa frá okkur.