155. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2024.

Störf þingsins.

[13:55]
Horfa

Eva Dögg Davíðsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Umræðan um orkuskort hefur verið hávær að undanförnu. Þetta er mikilvæg umræða um grundvallarinnviði sem eru forsenda velferðar okkar. Eins og fram kom í máli forstöðumanns Landsvirkjunar þá hefur umræðan verið á villigötum. Það er einfaldlega ekki rétt að tala um orkuskort þar sem Landsvirkjun hefur aldrei þurft að skerða forgangsorku í sinni 60 ára sögu og mun ekki gera samninga umfram getu, svo slíkt mun ekki raungerast. Það sem við sjáum hins vegar er eftirspurn umfram framboð. Það eru flest fylgjandi grænni orkuöflun, eins og kom fram í reyndar frekar leiðandi könnun á vegum Samtaka atvinnulífsins nýlega, þar sem 97% þeirra sem tóku afstöðu sögðust hlynnt aukinni grænni orkuframleiðslu í landinu en græn orkuöflun verður að haldast í hendur við aðra þætti eins og nærsamfélög og náttúru. Hún verður líka að vera hófsöm og byggjast á skynsemi. Það er skynsamlegt að leggja áherslu á uppbyggingu flutnings- og dreifikerfa sem tryggja afhendingaröryggi um allt land. Það er skynsamlegt að forgangsraða orku til heimila og smærri notenda. Við eigum að tryggja að orkan sé alltaf til staðar fyrir grunnþarfir samfélagsins en á meðan Landsvirkjun hefur aukið sölu sína til almenns markaðar hafa aðrir framleiðendur dregið úr. Úr þessu þarf að bæta. Það er líka skynsamlegt að vera með samninga um skerðanlega orku þar sem hægt er að selja meira þegar nægileg orka fyrir hendi en skerða þegar svo er ekki. Þannig getum við hámarkað nýtingu orkunnar og höfum raunar tryggt 96–99% nýtingu þessarar dýrmætu auðlindar, einmitt vegna þessa. Vinstri græn eru ekki á móti grænni orkuöflun en við leggjum áherslu á að allir virkjunarkostir fari í gegnum rammaáætlun og að verkferlið standist kröfur. Það er svo lykilatriði að virkjanir séu á forsendum samfélagsins alls, í eigu opinberra aðila og að þær ógni ekki einstökum náttúruperlum landsins. Það er skynsamleg orkunýting; orkunýting sem þjónar hagsmunum þjóðarinnar.