Störf þingsins.
Frú forseti. Í gær var borin til grafar ung stúlka, Kolfinna Eldey, sem féll fyrir hendi föður síns. Móðir hennar sendi afar sterk skilaboð til þjóðfélagsins alls. Mig langar að tryggja að skilaboð hennar hljómi einnig hér á meðal okkar sem þurfum sem mest að hlýða á ákall hennar. Hún sagði, með leyfi forseta:
„Við þurfum að fara að horfast í augu við það að geðsjúkdómar draga fólk til dauða alveg eins og krabbamein og hjartasjúkdómar og við þurfum að aflétta skömminni sem liggur eins og mara yfir fólki með þessa sjúkdóma og ekki síður eins og mara yfir aðstandendum.
Og ef við viljum koma í veg fyrir fleiri voðaverk þar sem saklaus börn láta lífið, eins og hefur nú gerst þrisvar á þessu eina ári, þá þurfum við sem samfélag að spýta í lófana, þrýsta á stjórnvöld um að efla verulega alla geðheilbrigðisþjónustu, sem og þjónustu við börn sem glíma við erfiðan vanda í skólakerfinu. Við hljótum öll að vera sammála um að þarna þarf að forgangsraða upp á nýtt, því að hvert mannslíf sem glatast vegna skorts á fjármagni og mannúð í geðheilbrigðiskerfinu er einu mannslífi of mikið.“
Virðulegi forseti. Ákall þetta snertir okkur öll. Ég treysti því að þingheimur hlusti á þetta ákall, taki höndum saman og spýti í lófana og að við gerum allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja að jafn skelfilegir atburðir gerist ekki aftur. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)