Þjónusta við börn með fjölþættan vanda.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að taka upp þessa umræðu hér á Alþingi og fagna því að við séum hér að ræða um stöðu þeirra barna sem eru í viðkvæmastri stöðu í íslensku samfélagi. Ég tek undir með hv. þingmanni varðandi þá sorgaratburði sem hafa átt sér stað nú á haustdögum sem snúa m.a. að þessum börnum vegna þess á bak við hræðilega atburði eru oft börn sem hafa upplifað hræðilega hluti. Það á svo sannarlega við í þessu efni hér. Þetta eru ekki upplýsingar sem eru nýjar af nálinni. Við höfum séð þessa þróun og það er einmitt þess vegna sem við settum af stað vinnu við að skoða stöðu barna með fjölþættan vanda, hvernig mætti ná betur utan um þann hóp fjárhagslega og ekki síst faglega vegna þess að það er mikilvægt að ná vel utan um þessa einstaklinga. Út kom skýrsla stýrihóps í ágúst 2023, eins og þingmaðurinn vitnaði til og unnin var af ráðuneyti mennta- og barnamála, þar sem gert var ráð fyrir gríðarlegum faglegum og fjárhagslegum ávinningi, milljarða fjárhagslegum ávinningi, af því að einn og sami aðilinn sæi um þjónustu við börn með fjölþættan vanda.
Í framhaldi af þessari skýrslu vann ráðuneyti mennta- og barnamála og Barna- og fjölskyldustofa eftir því prógrammi og við ætluðum okkur frá 1. janúar 2024 að hefja í skrefum innleiðingu á því að ríkið tæki yfir þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Tillaga þessarar skýrslu var sú að þetta færi inn í samtal sem var í gangi á milli ríkis og sveitarfélaga og varðaði kostnaðarskiptingu á milli ríkis og sveitarfélaga í málefnum fatlaðs fólks. Niðurstaðan úr þeirri vinnu, sem kynnt var í áfangaskýrslu sem afhent var félagsmálaráðherra í desember 2023, var að mikilvægt væri að kanna fýsileika þess frekar að ríkið tæki yfir þessa þriðja stigs þjónustu við einstaklinga og það væri ekki nægilega sterkur grunnur undir því að stíga þetta skref.
Ég get sagt það hér að ég var mjög ósáttur við þessa lendingu vegna þess að það liggur fyrir faglegur ávinningur og fjárhagslegur ávinningur af því að einn og sami aðilinn taki þetta yfir.
En gott og vel, þessu var vísað inn í vinnu við aðra áfangaskýrslu í málefnum fatlaðs fólks sem gerði það að verkum að við töfðumst um heilt ár við innleiðingu á þessum tillögum. Niðurstaðan varð síðan sú, í þeirri áfangaskýrslu sem kom út núna í byrjun september, 11. september síðastliðinn, að lagt var eindregið til að ríkið tæki yfir þjónustu við þennan þyngsta hóp barna í íslensku samfélagi og horft yrði til skýrslunnar sem kom út í ágúst fyrir ári síðan. Þannig að nú ætti ekki að vera eftir nokkru að bíða að undirbúa að stíga þau skref að ríkið taki yfir þjónustu við þessi börn. Mennta- og barnamálaráðuneytið og Barna- og fjölskyldustofa vinna eftir því að við getum hafið innleiðingu á þeim aðgerðum sem voru tilgreindar í ársgamalli skýrslu frá og með 1. janúar næstkomandi en til þess þarf að hafa hraðar hendur. Til þess þarf að ljúka samkomulagi og samningum við sveitarfélög um yfirtöku ríkisins á þjónustu við þessi börn. Það þarf að gerast á næstu vikum. Því þarf að ljúka fyrir áramót vegna þess að þessi börn geta ekki beðið eitt ár í viðbót. Það hefur legið fyrir í heilt ár að við hefðum getað tekið yfir þjónustu við þessi börn fyrr.
Þegar kemur síðan að fyrirbyggjandi úrræðum og aðgerðum sem þingmaðurinn vitnar hér til og ég tek hjartanlega undir þá er það mikið fagnaðarefni að ríkisstjórnin hafi tekið ákvörðun um það að margfalda það fjármagn sem áætlað var til aðgerða í ofbeldismálum sem kynntar voru í júní síðastliðinn og ég geri ráð fyrir því að það verði kynnt við 2. umræðu fjárlaga. Það mun m.a. renna til fyrsta, annars og þriðja stigs úrræða sveitarfélaga, til þjónustu við gerendur í ofbeldismálum og til eflingar Flotans, sem er félagsmiðstöð en líklega hafa fáir eins góðar tengingar við jaðarsett börn í íslensku samfélagi eins og einmitt Flotinn, og fleira mætti nefna. Efling samfélagslögreglu margfalt á við það sem áætlað var. Ég fagna því að við skulum vera að stíga það skref en ítreka jafnframt að þær aðgerðir eru settar fram, og efling þeirra, út frá því samspili að ríkið taki jafnframt yfir þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Sú vinna þarf að klárast núna á þessu haustþingi. (Forseti hringir.) Hún þarf að liggja fyrir fyrir 2. eða 3. umræðu fjárlaga þannig að hægt sé að vinna eftir því frá og með 1. janúar næstkomandi.(Forseti hringir.)
Ég þakka hv. þingmanni sérstaklega fyrir að taka þessa umræðu upp hér á þinginu. Hún er þörf, hún er brýn (Forseti hringir.) og ég tek sérstaklega undir það að við þingmenn, Alþingi og ríkisstjórn, eigum að taka höndum saman í þessu.
(Forseti (OH): Forseti biður hv. þingmenn að virða ræðutímann.)