155. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2024.

Þjónusta við börn með fjölþættan vanda.

[14:19]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Frú forseti. Niðurskurður bakdyramegin; það hefur verið stefna þessarar ríkisstjórnar í velferðarmálum að varpa verkefnum yfir á sveitarfélög, velta kostnaði við grunnþjónustu yfir á sveitarfélög og viðhalda óvissu um það hvar ábyrgðin liggur, viðhalda störukeppni milli ríkis og sveitarfélaga um það hvar ábyrgðin liggur á ýmsum málefnasviðum velferðarþjónustunnar í landinu. Þetta hefur verið rauður þráður í stefnu þessarar ríkisstjórnar. Það sem við ræðum hér í dag er auðvitað ein af birtingarmyndum þess. Það geta allir sagt sér það sjálfir að það er ekki heilbrigt að ríki og sveitarfélög standi í endalausu reiptogi um börn og hagsmuni þeirra. Þannig eigum við ekki að hafa hlutina.

Þessi vandi á sér langa sögu og hann hefur auðvitað verið reifaður hér aðeins í fyrri ræðum og ég vil þakka hv. þm. Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur fyrir að vekja máls á þessu og þakka líka hæstv. ráðherra fyrir ágæta yfirferð og fyrir að sýna góðan vilja, heyrist mér, og vilja láta hendur standa fram úr ermum á næstu vikum þessa þings. Það var gagnrýnt fyrir nokkrum árum í skýrslu frá stjórnendum í barnavernd á höfuðborgarsvæðinu að stofnanir ríkisins væru markvisst að beina börnum inn í einkarekin úrræði og varpa þannig af sér faglegri og fjárhagslegri ábyrgð. Eins og hér var rakið er búið að leggja niður meðferðarpláss í tugatali án þess að önnur úrræði komi í staðinn. Þannig að það er mikið verk fyrir höndum. Það eru ákveðnar aðgerðir í þeirri skýrslu sem hér er til umfjöllunar sem eru beinlínis skilgreindar sem bráðaaðgerðir. Þess verða því að sjást einhver merki í fjárlögum sem verður afgreidd núna á næstu mánuðum að Alþingi og stjórnkerfið muni taka þessi verkefni alvarlega og ráðast í þau strax á næsta ári.

Það er hins vegar dapurlegt að sjá líka í fjárlögum, af því að við erum að ræða hér líka um geðheilbrigðisþjónustu almennt við börn, að það er ákveðin þjónusta sem er fjársvelt (Forseti hringir.) þrátt fyrir biðlista sem eru að lengjast og lengjast. Við verðum að gera betur, virðulegi forseti. Við verðum að forgangsraða (Forseti hringir.) í þágu heilbrigðis barna og styrkja þessa þjónustu.