Þjónusta við börn með fjölþættan vanda.
Virðulegur forseti. Mér er vandi á höndum að koma hér eftir þessa öskurræðu þar sem einna helst var hægt að lesa það út að vanlíðan íslenskra barna væri ríkisstjórn Íslands að kenna. En ég ætla að leyfa mér að fara í málefnalega umræðu um þetta mikilvæga og góða mál sem er sett hér á dagskrá og ég ætla að þakka hv. þingmanni fyrir að setja það á dagskrá. Eins og flestir var ég í kjördæmaviku í síðustu viku, ég er í Suðvesturkjördæmi, og ég held að þetta málefni, þ.e. málefni barna með fjölþættan vanda, hafi verið rætt á öllum fundunum. Ég ætla líka að segja að þetta voru almennt mjög góðir fundir með sveitarstjórnunum. Og vegna þess að hér áðan var verið að tala um rauðan þráð hjá ríkisstjórninni að varpa verkefnum yfir á sveitarfélögin þá hefur þetta auðvitað verið stöðug glíma lengi milli sveitarfélaga og ríkis um hver ber ábyrgð á hverju og hver á að kosta hvað. Mér fannst miklu jákvæðara viðhorf hjá sveitarfélögunum núna í þessum heimsóknum heldur en oft áður.
Þetta var vissulega það verkefni sem var bent á og ég tek bara undir með hæstv. ráðherra, við verðum að finna á því lausnir. Ég held að ég sé ekki að fara rangt með að ég hafi heyrt dæmi um 28 milljónir á mánuði í kostnað vegna barns. Þetta eru auðvitað svakalegar tölur. Ég verð bara að segja að það er erfitt fyrir mig sem er svo lánsöm að eiga þrjú heilbrigð börn að geta ímyndað mér hvers konar þjónustu þarf að veita sem kostar slíka fjármuni. En það hlýtur líka að segja okkur að við hljótum að geta veitt þá þjónustu, jafnvel betri þjónustu, fyrir minna fé. Til þess þarf auðvitað annaðhvort að sveitarfélögin komi sér saman um einhver sameiginleg úrræði eða líklega, það sem kemur fram í skýrslu sem hæstv. ráðherra nefndi hérna, að ríkið taki þetta yfir þannig að þjónustan sé á einni hendi, þannig að þekkingin skapist á einum stað og hægt sé að veita gæðaþjónustu en líka með hagkvæmari hætti.
Það eru fleiri atriði sem ég vildi koma inn á en ég fæ kannski bara að gera það í næstu ræðu.