155. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2024.

Þjónusta við börn með fjölþættan vanda.

[14:26]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Þrátt fyrir að það hafi verið vilji þingheims að tryggja farsæld barna þá er sannleikurinn sá að við höfum alls ekki staðið okkur í því að takast á við vanda þeirra barna sem hvað verst standa. Við stöndum frammi fyrir brýnni þörf til að auka þau úrræði sem eru í boði fyrir börn með fjölþættan vanda. Börn sem glíma við flóknar áskoranir þurfa stuðning sem er sérsniðinn að þörfum þeirra. Það er á okkar ábyrgð sem samfélags að tryggja að þau fái þann stuðning. Farsældarlögin hafa bætt málsmeðferð barnanna og samhæfingu milli aðila en vandamálið sem eftir stendur er að möguleg meðferðarúrræði hafa einfaldlega ekki verið fjármögnuð, úrræði sem ótal skýrslur og starfshópar hafa bent á að vanti. Það er einnig nauðsynlegt að við grípum inn miklu fyrr en áður því að rannsóknir sýna að snemmtæk íhlutun getur haft gríðarlega jákvæð áhrif á lífsgæði barna og fjölskyldna þeirra. Með bættu aðgengi að sálfræðiþjónustu fyrir börn getum við greint vandamál fyrr, veitt viðeigandi aðstoð og komið í veg fyrir frekari erfiðleika síðar meir. Aukin úrræði og bætt aðgengi að sálfræðiþjónustu mun ekki aðeins gagnast börnunum sjálfum heldur einnig fjölskyldum þeirra og samfélaginu í heild. Með því að fjárfesta í framtíðinni tryggjum við betri lífsgæði, drögum úr félagslegum kostnaði og byggjum upp sterkara samfélag.

Tökum höndum saman, spýtum í lófana og vinnum að því að skapa umhverfi þar sem öll börn fá tækifæri til að blómstra óháð þeim áskorunum sem þau standa frammi fyrir. Framtíðin er í okkar höndum og með réttum aðgerðum getum við tryggt þeim farsæla framtíð.