155. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2024.

Þjónusta við börn með fjölþættan vanda.

[14:30]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að vera upphafsmaður þessarar umræðu og ráðherra fyrir að koma til hennar. Það er að mörgu leyti þyngra en tárum taki hversu erfiðlega okkur hefur tekist upp sem samfélagi við það að ná utan um þennan hóp sem er í sjálfu sér ekki mjög fjölmennur en er gríðarlega ögrandi verkefni að ná utan um. Það er, eins og við þekkjum núna eftir kjördæmaviku, slagur milli ríkissjóðs og sveitarfélaga um hvar kostnaður af þessum málaflokki skuli liggja. Mér hefur þótt tónninn sem var sleginn, í öllu falli í mínu kjördæmi, Norðvestur, vera eftirspurn eftir því að stjórnvöld og sveitarfélög næðu saman um lausnir sem væru þeirrar gerðar að bæði væri í forgrunni að ná utan um þau alvarlegu tilvik sem hér falla undir en sömuleiðis að farið yrði í þá vegferð að reyna að ná sem mestum árangri fyrir þann pening sem í þetta þarf að fara, því að hvert og eitt svona tilvik kostar gríðarlega mikið á hverju ári. Þar eru ýmsar tillögur sem voru nefndar en á sama tíma er auðvitað sárt til þess að vita að þær tillögur, sem komu fram hér í skýrsluformi og vísað er til hjá málshefjanda, hafa ekki náð fram að ganga nema að mjög litlu leyti. Þetta er málaflokkur og mál sem við munum ekki ýta á undan okkur mikið lengur. Það má til sanns vegar færa að það hefur verið reynt að kaupa tíma of lengi og niðurstaða þess verður alltaf sú að (Forseti hringir.) málin versna og verða alvarlegri og dýrari í stað þess að reyna að ná utan um þau heildstætt strax með hagkvæmum hætti þannig að gagn geti orðið af.