Þjónusta við börn með fjölþættan vanda.
Virðulegur forseti. Það umræðuefni sem við tökum fyrir hér er gríðarlega mikilvægt og varðar framtíð barnanna okkar og hvernig við ætlum að taka utan um börn með fjölþættan vanda. Við höfum séð að vandinn er svo sannarlega ærinn en það er ekki þar með sagt að við sitjum með hendur í vösum og bíðum eftir að hlutirnir lagi sig sjálfir, heldur eru þær tillögur og úrbætur sem mennta- og barnamálaráðherra fór yfir í ræðu sinni bæði góðar og til þess fallnar að auka skilvirkni og gæði í þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Það er verið að vinna eftir tillögum starfshóps um þörf á þjónustu fyrir börn með fjölþættan vanda, m.a. að það sé fýsilegt að ríkið taki aukna ábyrgð á þjónustu við þyngsta hóp barna með fjölþættan vanda, en áætlað er að fjöldi þeirra sé 34 á hverjum tíma og að árlegur heildarkostnaður við þjónustuna sé um 3 milljarðar kr. Í ljósi þess er verið að vinna eftir áætlun um að Barna- og fjölskyldustofa taki yfir þjónustu við þau börn frá og með næstu áramótum. Samtalið er hafið við sveitarfélögin og það skiptir miklu máli að samningar náist sem fyrst svo að sú áætlun gangi upp og gert verði ráð fyrir því við afgreiðslu fjárlaga næsta árs.
Það er ljóst að við verðum að vinna í takt í þessum málum, þvert á allar pólitískar línur. Hugmyndafræði farsældar, sem snýst um að loka hringnum í þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra, þarf að vera í fyrirrúmi þegar við tökum ákvarðanir sem varða börn með þennan vanda. Það skiptir höfuðmáli að við tryggjum með öllum mögulegum úrræðum getu kerfisins og aðkomu allra aðila til að tryggja barninu þjónustu og vernd.