155. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2024.

Þjónusta við börn með fjölþættan vanda.

[14:37]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég held að það sé engin spurning um það og engum blöðum um það að fletta að hvert og eitt okkar er gætt fullum vilja til að veita þjónustu sem þessi börn sem hér um ræðir þurfa á að halda. En við verðum samt að horfast í augu við það að staðan sem við erum í í dag er afleiðing ákvarðana, pólitískra ákvarðana, sem flestar hafa verið teknar í þessum sal. Hér er tvennt undir. Það er áralöng niðurskurðarstefna í opinberum rekstri, kennd við „austerity“ á ensku, þar sem alltaf á að kasta krónunni og spara aurinn og vísa til einkarekinna úrræða. Það er líka áralangt getuleysi þegar kemur að því að semja um verka- og tekjuskiptingu á milli ríkis og sveitarfélaga sem dugar, sæmileg sátt ríkir um og hægt er að vinna eftir til langs tíma. Ég tek undir þau orð sem hér voru sögð af fundum okkar þingmanna í Suðvesturkjördæmi í síðustu viku. Á hverjum einasta fundi með sveitarstjórnarfólki þar var talað um þennan hóp, um hóp barna sem glíma við svokallaðan fjölþættan vanda og þurfa mikla þjónustu. Það er alveg ljóst í hugum, held ég, okkar allra að það er langbest að þau fái þessa þjónustu miðlægt og að ríkið sjái um hana, þótt ekki sé nema til að koma í veg fyrir það óheppilega tal um að hvert barn kosti svo mikið. Það er vægast sagt óheppilegt tal, frú forseti.

Við erum öll af vilja gerð í Samfylkingunni en þetta kallar á að við horfumst í augu við verkefnið eins og það er og vísum því ekki æ ofan í æ (Forseti hringir.) í niðurskurð og úrræðaleysi.