Þjónusta við börn með fjölþættan vanda.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu. Þetta er mjög þörf umræða. Þetta er ekki flókið: Eitt barn á bið er einu barni of mikið. Biðlistar eftir þjónustu fyrir börn með fjölbreyttan og viðvarandi vanda eru allt of langir. Ert þú barn nr. 299 á bið? Hver vill vera þar? Biðlistar vegna þjónustu við börn eru ekki bara upp á marga mánuði heldur jafnvel ár. Það er fullkomlega óeðlilegt og algerlega ólíðandi ástand. Tölfræði á þróun biðlista hjá ýmsum stofnunum er að þeir eru stærðfræðilega langir. Það kemur m.a. fram að það eru 600 börn í dag á biðlista eftir Ráðgjafar- og greiningarstöð og um 1.600 börn á bið eftir þjónustu hjá geðheilsumiðstöð barna. Þá eru börn á biðlista eftir greiningu hjá sveitarfélögum og eftir sérskólaúrræðum og sálfræðimeðferð og öðrum stuðningi á ýmsum stöðum í kerfinu. Þetta á ekki að líðast. Langir biðlistar hafa áhrif og skemma fyrir batahorfum og eyðileggja lífsgæði barna, ungmenna og fjölskyldna þeirra. Við verðum að taka tillit til þess líka hvaða áhrif þetta hefur, ekki bara á barnið og hvernig það getur rænt framtíð barnsins að fá ekki þá þjónustu sem það á rétt á, heldur hvaða áhrif það hefur á fjölskylduna; feður, mæður, afa, ömmur og systkini. Við getum ekki lagt þetta á fólk. Það gerir sér enginn grein fyrir því hvaða álag fylgir því að vera með barn sem er á bið eftir þjónustu sem það þarf sérstaklega á að halda og hvaða áhrif það hefur á fjölskylduna að þurfa að bíða og brenna upp. Við erum að búa til vandamál, meiri vandamál. Hver króna sem við leggjum í þetta mun skila sér margfalt til baka og okkur ber skylda til að koma þessu í lag.