Þjónusta við börn með fjölþættan vanda.
Frú forseti. Ég vil taka undir með þeim sem hafa talað um mikilvægi þessarar umræðu og þakka ráðherranum fyrir sína ræðu og svör hans áðan. Þingmönnum er auðvitað viss vandi á höndum þegar rætt er um málefni barna og ungmenna og tíminn til þess er tvær mínútur, því það er auðvitað hægt að ræða þessi mál frá mjög mörgum hliðum.
Það eru nokkur atriði sem mig langar að leggja áherslu á. Mér finnst mikilvægt að við höfum það í huga að þau börn sem eru í hvað mestum vanda hafa oft búið við, upplifað eða eiga að baki mjög mikla áfallasögu. Þess vegna er mikilvægt að við sem samfélag tökum þétt utan um þau og aðstoðum þau. Ráðherra fór yfir tillögur að fyrirkomulagi og efni skýrslu sem unnin hefur verið. Mér finnst skipta máli að þar kemur fram að með því að ríkið sinni þessari þjónustu sé jafnframt hægt að veita samhæfðustu þjónustuna. Það skiptir nefnilega máli, einmitt fyrir þessi börn, og svo vill til að það er einnig sú þjónusta sem nýtir fjármunina best. Mér finnst skipta máli að það sé ekki settur verðmiði á einstakt barn heldur að fjármunirnir séu nýttir þannig að við tökum sem best (Forseti hringir.) utan um öll börn sem þurfa á því að halda. Að lokum tek ég undir það og tel að það verði ekki gert með því að útvista málum til einkaaðila.