155. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2024.

Þjónusta við börn með fjölþættan vanda.

[14:49]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Frú forseti. Ég þakka þingmönnum öllum fyrir þátttöku í umræðunni og hæstv. ráðherra sömuleiðis. Ég er sammála þeim orðum hans hér áðan að við erum í þessari umræðu að ræða um þau börn í samfélaginu sem eru í viðkvæmustu stöðunni. Ég nefndi hér áðan að það væri meira en við sem samfélag getum þolað að börn séu þolendur slíkra afbrota sem við höfum upplifað síðustu vikur og mánuði, en við getum samhliða auðvitað ekki heldur sætt okkur við þá tilhugsun að börn séu gerendur í jafn alvarlegum málum. Ég vonast sannarlega til þess að þessi umræða verði til þess að hreyfa við þessum málum. Þar á ég við að raungera einhverjar þær aðgerðir sem liggja fyrir í fínum og vönduðum úttektum. Við vitum hver þörfin er. Við vitum hvað hægt er að gera. Við vitum hvað sérfræðingarnir segja okkur að gera. Ég beini því til ráðherrans að beita sér fyrir því við ríkisstjórnarborðið, þar sem stærstu ákvarðanir eru teknar, að aðgerðir verði lagðar fram og tímasettar þannig að við tölum með skýrum hætti út í samfélagið um það að ætlunin sé að fara í að raungera tilteknar aðgerðir. Ég saknaði þess að fá engin bein svör frá hæstv. ráðherra við mínum spurningum um hver fjöldi meðferðarúrræða er í kerfinu í dag. Ég saknaði þess að heyra lítið af svörum hans um það hvernig hann ætlar sér að fjármagna þær aðgerðir sem á að fara í. Þar með teiknast því miður auðvitað upp sú staða að við erum í sjálfu sér ekki lengra komin en að vera í samtali sem er á hugmyndastigi. Þegar aðgerðir eru hvorki tímasettar né fjármagnaðar erum við ekki lengra komin en að vera með aðgerðir á hugmyndastigi. (Forseti hringir.) Ég þykist vita að ráðherra á stuðning þingheims alls fari hann nú í það verkefni að beita sér af þeim þunga sem ég veit að hann getur gert til þess að raungera þær aðgerðir sem við þurfum á að halda.